Ók á 130 km hraða
Innlent | mbl | 6.11.2026 | 6:53
Lögreglan á Vínlandsleið stöðvaði bifreið þar sem ökumaðurinn er grunaður um að hafa ekið á 130 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan17 í gær til kl. 5 í morgun.
Önnur bifreið var stöðvuð í umdæminu. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Tvær tilkynningar bárust lögreglunni á Hverfisgötu um þjófnað úr verslunum. Í öðru tilvikinu var sá grunaði látinn laus að lokinni skýrslutöku.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
