„Sum lífsreynsla er bara krumpuð“

Sýning Ragnheiðar í Gallerí Úthverfu á Ísafirði opnar á morgun kl. 16 og stendur til 28. nóvember.

Ragnheiður Gestsdóttir opnar sýninguna Ef allt annað bregst í Gallerí Úthverfu á Ísafirði á morgun kl. 16. Um er að ræða innsetningu úr gólfteppi auk viðkvæmra keramíkskúlptúra á veggjum rýmisins.

„Þetta eru gjörólík efni að öllu leyti en í þessari sýningu eru þau að gera það sama. Þau bungast og hreyfast og mynda einhvern óróleika sem fá mann til að vilja slétta úr og laga. En það er ekki hægt að slétta úr og laga allt, sumt þarf að fá að vera og sum lífsreynsla er bara krumpuð og óstraujanleg,“ segir Ragnheiður.

„Í titlinum leynist ákveðin örvænting, einhver tilfinning sem ég tengi við. Að vera alltaf að reyna að baktryggja sig, finna leiðir út úr vanda eða sársauka. Þessi hugmynd um að allt þurfi að leysa, sem ég hef verið að setja spurningarmerki við undanfarið. Ef allt annað bregst er kannski kominn tími til að leggjast bara niður og bíða aðeins. Hvíla sig og safna orku og sjá hvort lausnin birtist ekki bara án fyrirhafnar.“

Aðgangur að glanslífi

„Ég hef hugsað um þessa innsetningu í mörg ár, teppi sem fyllir alveg í rýmið en er of stórt og myndar þannig bungu eða einhvers konar hindrun. Ég hef áður unnið með mottur og gólfteppi, til að mynda í Gerðarsafni þar sem ég sýndi rauðan dregil sem bungaðist í flækju yfir brú, svo áhorfandinn komst ekki yfir. Þá var ég að hugsa um leiðina áfram og upp og hvernig hún birtist okkur konum og kvárum. Á þessari sýningu tekur hindrunin yfir allt rýmið svo áhorfandinn kemst ekki nema að hluta rýmisins. Á sama tíma er teppið þykkt og mjúkt og minnir svolítið á dásamlega dýrt hótelherbergi, hvíld og frí. Það má hugsa þetta verk bæði í tengslum við lífsreynslu og aðgengi.

Ég held að ég sé alltaf að glíma við sömu spurningarnar í öllum mínum verkum. Þetta bil á milli þess sem okkur er sagt að sé eða eigi að vera, og þess sem er. Einhverjar svona glansmyndir af lífi og svo lífið sjálft með öllum sínum flækjum og rugli. Og svo hversu ólík staða okkar er þegar kemur að aðgangi að glanslífinu, að peningunum, ákvarðanatökunni, valdinu, framanum – og hvíldinni.

Það er svo auðvelt að detta í að langa í hitt og þetta og bara ruglast alveg með sjálfsmyndina í því samhengi. Finnast að ég þurfi að eiga vaxjakka og vera að æfa mig fyrir bakgarðshlaup þegar það er absúrd hugmynd í mínu lífi. Þrátt fyrir að vera krítísk á þessar hugmyndir er ég alltaf með svona smá samviskubit yfir að eiga ekki meiri pening og hafa ekki meiri tíma til að sinna svo mörgu sem aðrir virðast geta sinnt.

Ekki misskilja mig, ég er auðvitað moldrík í alþjóðlegum samanburði, en mér finnst umhverfið oft láta eins og við séum öll með aðgang að lúxuslífinu.“

"Á sama tíma er teppið þykkt og mjúkt og minnir svolítið á dásamlega dýrt hótelherbergi, hvíld og frí. Það má hugsa þetta verk bæði í tengslum við lífsreynslu og aðgengi."

Hvaðan koma hugmyndirnar?

„Hjá mér eru hugmyndir svolítið eins og myndir sem birtast mér, nánast fullkláraðar. Ég er ekki listakona sem prófa mig endalaust áfram með efni og hugmyndir án þess að vita hver lokaniðurstaðan verður.

Stundum vildi ég óska að ég væri þannig, það er rómantískara og meira í takt við það sem fólk sér fyrir sér að listamenn geri. En ég er yfirleitt alveg búin að sjá fyrir mér hvað ég ætla að gera áður en ég geri það. Ég elska auðvitað bilið á milli þess sem ég held að birtist og þess sem verður, þar ríkir ákveðin spenna sem krefst þess að ég sleppi takinu og treysti hugmyndinni þó hún birtist mér ekki nákvæmlega eins og ég sá fyrir mér.

Þegar ég var yngri fannst mér miklu erfiðara að treysta verkunum, ég vildi útskýra þau og tryggja að hugmyndin á bakvið verkið kæmist til skila. Nú finnst mér miklu meira spennandi að heyra hvaða hugmyndir kvikna hjá áhorfandanum heldur en að ræða hvað ég var að hugsa.“

Mesta pönkið er að stoppa

„Ég lenti í kulnun, eins og hálf þjóðin, fyrir nokkru síðan og er að reyna að standa aftur upp. Það tengist einmitt þessu bili á milli. Ég er í stanslausri innri baráttu því það er jú synd að vera ekki alltaf að, en svo er það líka mesta pönk í heimi að stoppa.

Að gefast upp, horfa á hindrunina og geta ekkert gert annað en að bíða. Það hefur verið rosalega hollt og eiginlega mögnuð reynsla fyrir mig. Það er óhjákvæmilegt að fara í djúpa sjálfsskoðun um lífsformið sjálft, um gildin og taktinn. Þess vegna er teppið hvítt og mjúkt og lokkandi, eins og hvíldin.“

Bakgrunnur þinn er m.a. í sjónrænni mannfræði. Hvernig mótar þessi fjölbreytti bakgrunnur þig sem myndlistarmann?

„Það er kannski helst í svona krítísku sjónarhorni og að gefa sér að ekkert sé gefið. Mannfræðin fór í djúpa sjálfsskoðun fyrir 50 árum síðan þar sem hún fór að snúast um að gagnrýna sig sjálfa fyrir eigið sjónarhorn og leita að nýjum leiðum til að horfa og miðla.

Það er ekki hægt að horfa á söguna og menninguna án þess að vera meðvituð um hver heldur á valdinu til að segja frá, móta og sýna. Ég held að mannfræðin hafi ýtt mér út í að horfa á okkar eigin menningu og hvernig henni er miðlað, hvaða tákn eru til dæmis notuð til að miðla velgengni og hvaðan koma þau. Hver hefur valið einmitt þessi tákn?

Ég er hvít og rík og menntuð og heilbrigð og móðir, ég á góða fjölskyldu og vini. Það eru svo mikil forréttindi að vera og eiga þetta allt og samt er ég í kulnun og get kvartað yfir mörgu. Eins og ég eigi að fá og vera eitthvað meira.“

Útilistaverk eftir Ragnheiði sem staðsett er á Ægisíðunni og margir kannast við.

Fólk borgar frekar fyrir hönnun heldur en myndlist

Verðurðu vör við að fólk búi yfir einhverjum ranghugmyndum um listamenn sem mætti leiðrétta?

„Já, ég held að fólk átti sig ekki á því hvað það er mikið hark að vera listarmaður. Á Íslandi er ofboðslega lítill markaður fyrir sölu á verkum og við erum eiginlega öll að vinna launavinnu, sem oft er í láglaunaflokki, meðfram listinni.

Fólk borgar miklu frekar fyrir hönnun heldur en myndlist. Margir agnúast út í listamannalaun og setja þau ekki í samhengi við sitt nánasta umhverfi. Fólk vill hlusta á tónlist og fara í bíó og leikhús og á listasöfn en allt þetta listafólk sem býr til innihaldið er yfirleitt í stanslausum afkomuótta.

Allar menningarstofnanir eru fjársveltar, hvernig ætli það sé þá fyrir tónlistarfólkið og myndlistarmennina sem raunverulega búa til listina sem húsin hýsa, en fá nánast ekkert fyrir.

Þetta ástand er óþolandi og mjög margir gefast upp og fara að læra eitthvað annað til að framfleyta sér. En ef allir gera það verður ekkert eftir. Listin fær okkur til að koma saman úr ólíkum áttum, deila rými, hugsa og tala saman. Hún kveikir á alls kyns tilfinningum, hjálpar okkur að vinna úr hinu og þessu og gerir allt betra. Eitthvað verður að breytast.“

Áhætta og ótti

Er eitthvað sem þú hefur þurft að aflæra til að komast nær því sem þú vilt gera í myndlist?

„Eins og með alla sköpun þá er þetta ferli bara mjög afhjúpandi. Það er engin leið að vita hvernig aðrir sjá verkin, hvort þau lendi eða ekki. Það er alltaf áhætta og ótti þarna, sem er líka svo spennandi. Þetta er eins og að vinna við þýðingar en vera alltaf að reyna að þýða ekki alveg allan textann svo lesandinn fái sjálfur að beita sér.

Aflæra það að leitast eftir að finna lokapunkt og leyfa frekar öðrum að eiga verkið með mér. Áhorfandinn á í einkasamtali við verkin og ég hef enga stjórn þar á.“

Hvað drífur þig áfram?

„Æ, það er svo mikil klisja, en það er raunverulegt. Það bara gerist eitthvað inn í okkur sem sköpum þegar við fáum að skapa. Það kviknar á öllu og tilveran fær annan lit. Það verður til svona ofur fókus og í honum verður svo skýrt hvað skiptir máli og hvað ekki, þetta verður alltaf svolítið tilvistarlegt ástand og það mætti kannski segja að hver einasta sýning breyti mér svolítið. Þetta er örugglega eins og að vera stærðfræðingur og fá að leysa ógeðslega erfið dæmi, kitlandi spennandi og gaman,“ segir Ragnheiður en sýningin stendur til 28. nóvember.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅