Var aðeins 19 ára þegar hann myrti í fyrsta sinn – Óttast að fórnarlömb hans séu fleiri

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 6. nóvember 2026 07:00

James er grunaður um að hafa myrt Susan og Brendu.

Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur upplýst tvö hrottaleg morð sem framin voru með tæplega hálfs árs millibili á áttunda áratug síðustu aldar.

Fórnarlömbin voru tvær ungar konur sem höfðu verið beittar kynferðisofbeldi og kyrktar. Ný DNA-tækni leiddi lögreglu loks á slóð manns sem aldrei hafði áður verið grunaður um morðin. Hann lést hins vegar fyrir þremur árum.

Susan Rush var 21 árs þegar hún lagði af stað á kirkjusamkomu í Washington í Pennsylvaníu þann 25. nóvember 1976. Hún komst aldrei á áfangastað og daginn eftir fann bróðir hennar lík hennar í farangursrými bifreiðar hennar.

Tæpu hálfu ári síðar, þann 18. maí 1977, hvarf hin 18 ára Brenda Ritter eftir að hafa yfirgefið heimili kærasta síns í miklu þrumuveðri. Bifreið hennar fannst mannlaus daginn eftir og skömmu síðar fannst nakið lík hennar í um 1,6 kílómetra fjarlægð. Henni hafði einnig verið nauðgað og hún kyrkt.

Aldrei verið grunaður

Á blaðamannafundi á miðvikudag greindi lögreglan í Pennsylvaníu frá því að rannsóknir hefðu leitt í ljós að sami maður hefði myrt báðar konurnar. Sá hét James Richard Clark eldri og starfaði sem langferðabílstjóri.

Clark var aðeins 19 ára þegar fyrra morðið var framið og tvítugur þegar Ritter var myrt. Hann hafði aldrei áður komið við sögu rannsóknarinnar og lést af náttúrulegum orsökum í júlí 2023, 66 ára að aldri.

Rannsókn málsins hafði staðið yfir í áratugi án árangurs. Árið 2008 voru DNA-sýni úr máli Ritter færð í gagnagrunn bandarísku alríkislögreglunnar FBI, en þrátt fyrir reglulegar leitir fannst engin samsvörun.

Það var ekki fyrr en á síðustu árum, þegar nýjar aðferðir við DNA-rannsóknir komu til sögunnar, sem rannsókninni miðaði verulega áfram. Í maí 2025 tókst að staðfesta að DNA úr báðum morðmálunum væri frá sama manni. Frekari rannsóknir leiddu síðan í ljós að um var að ræða James Richard Clark.

Óttast að fórnarlömbin séu fleiri

James Petrosky, rannsóknarlögreglumaður í Pennsylvaníu, segir enn óljóst hvort Clark hafi þekkt konurnar eða hvort þær hafi orðið fyrir tilviljun á vegi hans.

„Við vitum það ekki á þessari stundu og því miður er hann látinn. Við höfum því ekki tækifæri til að handtaka hann og yfirheyra,“ sagði Petrosky við The Observer Reporter.

Lögreglan hefur ekki tengt Clark við önnur morð en Petrosky óttast að fórnarlömbin kunni að vera fleiri.

„Sá sem einu sinni er raðmorðingi er alltaf raðmorðingi. Ég tel að hugsanlega séu fleiri fórnarlömb þarna úti,“ sagði hann í samtali við fréttastöðina WPXI.

Þótt nærri hálf öld sé liðin frá morðunum telur lögreglan að framfarir í DNA-tækni geti enn varpað ljósi á önnur óupplýst sakamál og hugsanlega leitt í ljós hvort Clark hafi fleiri mannslíf á samviskunni.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅