Liverpool að tryggja framtíð ungstirnis sem Forest vildi kaupa
Liverpool er nálægt því að tryggja framtíð Trey Nyoni hjá félaginu en miðjumaðurinn ungi er sagður ætla að skrifa undir nýjan samning.
Samkvæmt The Athletic hefur Liverpool hafið viðræður við hinn 19 ára gamla Englending um framlengingu á samningi hans.
Nottingham Forest reyndi að fá Nyoni til liðs við sig í sumar og lagði fram 30 milljóna punda tilboð, sem Liverpool hafnaði.
Það sýnir hversu miklar væntingar forráðamenn félagsins hafa til leikmannsins.
Nyoni hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína og skoraði meðal annars gegn Fenerbahce í Meistaradeild Evrópu í vikunni.
Liverpool vill halda honum til framtíðar og telur hann geta orðið mikilvægur hluti af liðinu á næstu árum.
Ekki hefur enn verið tilkynnt um samkomulag en búist er við að Nyoni framlengi dvöl sína á Anfield.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗