Eldur kviknaði í Nytjamarkaðnum

Eldurinn var mikill til að byrja með.

Eldurinn var mikill til að byrja með. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Eldur kviknaði í Nytjamarkaðnum við Smiðjuveg í Kópavogi í nótt. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eldinn um tvöleytið.

„Þetta er mjög stórt iðnaðar- og verslunarhúsnæði. Við sendum allar okkar fjórar stöðvar á staðinn og allan okkar mannskap. Þetta leit illa út í fyrstu en það var góð brunahólfun í húsinu sem einangraði eldinn við þetta eina rými og það barst ekki eldur í önnur rými,“ segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir einhvern reyk þó hafa borist í önnur rými. Einhverjir íbúar fóru út en þeim var leyft að snúa aftur inn. Stefán telur að um 10 til 20 íbúar hafi verið á svæðinu en enginn var fluttur á slysadeild.

Útkall vegna eldsins barst um tvöleytið í nótt.

Útkall vegna eldsins barst um tvöleytið í nótt. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Síðustu bílar slökkviliðsins fóru á brott um fjögurleytið í nótt og var allur mannskapurinn meira og minna að störfum þessa tvo klukkutíma.

Verulegt tjón varð á markaðnum og líklega er allt ónýtt sem var þar inni.

„Þetta var hörkumikill eldur til að byrja með og leit illa út en sem betur fer náðum við fljótt tökum á þessu en vorum smá tíma að slökkva í glæðum og hreiðrum,“ greinir Stefán frá en húsnæðið var einnig reykræst.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅