Eignaðist barn með miklu yngri konu
Jamie Foxx með dætrum sínum Corinne Foxx og Anelise Foxx. Hann er nýbúin að eignast þriðja barnið. AFP/Neilson Barnard
Kvikmyndastjarnan Jamie Foxx er búin að eignast barn með kærustu sinni, Alyce Huckstepp. Töluverður aldursmunur er á parinu en Foxx er 58 ára en Huckstepp er aðeins 31 árs.
Fréttir bárust af meðgöngunni í vor en nú er barnið komið í heiminn að því fram kemur á vef People. Þetta er síður en svo fyrsta barn Foxx en hann og tvær dætur fyrir. Corinne er 32 ára og Anelise er 18 ára en dæturnar á hann úr fyrri samböndum.
Foxx og Huckstepp voru fyrst sögð vera par í ágúst 2023 eftir að þau sáust saman á veitingastað í Malibu. Þau hættu saman í janúar 2025, á annasömum tíma í lífi Foxx, en sáust aftur saman nokkrum mánuðum síðar.
Elskar að vera pabbi
Leikarinn hefur talað um föðurhlutverkið í viðtölum við fjölmiðla ytra og sagt það eitt það dýrmætasta í lífi sínu að heyra dætur sínar kalla sig pabba. Dætur hans hafa einnig staðið þétt við bakið á honum, meðal annars eftir alvarleg veikindi hans árið 2023 þegar hann fékk heilablæðingu sem leiddi til heilablóðfalls.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
