Liv og Sverrir deila leyndarmálinu á bak við góða veislu
Liv Bergþórsdóttir og Sverrir Viðar Hauksson buðu vinum til ítalskrar veislu þar sem áratuga vinátta og matargleði voru í fyrirrúmi. Sverrir sér um eldamennskuna en Liv um umgjörðina. Þau segja frá fyrstu máltíðinni, uppáhaldsréttunum og eldhúsgræjunum sem sífellt fjölgar. mbl.is/Hulda Margrét
Þegar Liv Bergþórsdóttir forstjóri BIOEFFECT og Sverrir Viðar Hauksson, forstjóri Bako Verslunartækni (BVT), bjóða vinum sínum í mat er verkaskiptingin skýr. Hann setur saman matseðilinn, kaupir inn og eldar en hún sér um allt hitt. Liv lýsir upphafinu á undirbúningnum með einföldum hætti: Hún pantar borð hjá Sverri.
Í nýlegu matarboði sóttu þau innblástur til Ítalíu og buðu heim vinum sem hafa fylgt þeim í gegnum lífið í meira en þrjátíu ár. Á borðum voru meðal annars ítalskar kræsingar, saffranrisotto og osso buco. Ítölsk tónlist fylgdi máltíðinni og kvöldið teygðist langt fram á nótt.
Fyrsta máltíðin sem Liv bauð Sverri upp á var þó af öðrum toga. Hún pantaði pasta á veitingastaðnum Horninu.
„Ég hef aldrei eldað og það kom enginn í mat til mín fyrir matinn. Það breyttist þegar ég kynntist Sverri,“ segir Liv.
Hún hafði þá þegar fundið sínar leiðir til að njóta góðs veitingahúsamatar heima. Sverrir segir hana raunar hafa breytt mörgum veitingastöðum bæjarins í staði sem seldu mat til að taka með, löngu áður en þeir fóru að senda mat heim.
Með Sverri breyttust matarboðin, enda hefur hann bæði áhuga á matargerð og ánægju af því að elda fyrir aðra.
„Við vorum duglegri að bjóða heim þegar við vorum yngri og gerum það ekki eins oft núna en það er auðvitað alltaf gaman að eiga notalega kvöldstund með fjölskyldunni eða góðum vinum yfir máltíð sem Sverrir hefur eldað,“ segir Liv.
„Risastór dótabúð“
Kynni Sverris af eldhússtörfum ná langt aftur.
„Móðir mín rak sveitahótel á árum áður og þar var ég mikið að brasa í eldhúsinu og þekkti því ágætlega til.“
Í dag tengjast maturinn og eldhúsin einnig starfi hans hjá BVT. Fyrirtækið varð til í núverandi mynd snemma árs 2024 og síðan hefur mikið gengið á við að sameina starfsemina og þróa hana áfram.
„Reksturinn byggist á þremur stoðum: verslanalausnum, vöruhúsalausnum og lausnum fyrir veitingageirann. Við vinnum að fjölbreyttum og spennandi verkefnum á öllum þessum sviðum,“ segir Sverrir.
Verslun BVT að Draghálsi 22 er sá hluti starfsins sem honum þykir sérstaklega skemmtilegur. Þangað leita bæði fagmenn og heimiliskokkar eftir áhöldum og búnaði til matargerðar.
„Hún er bæði fyrir fagmenn og ástríðukokka, alla sem elska að elda heima og vilja koma sér upp góðum, faglegum áhöldum. Þar eru allir velkomnir og við höfum sérstaklega gaman af því þegar fólk kíkir inn af götunni til að skoða og fá hugmyndir.“
Vöruúrvalið spannar allt frá pottum, pönnum og hnífum til glasa, hnífapara og búnaðar fyrir barinn og baksturinn. Þar eru líka stærri tæki fyrir atvinnueldhús.
„Við segjum gjarnan að hjá okkur fáist allt í eldhúsið, hvort sem það er stórt atvinnueldhús eða eldhúsið heima. Þetta er í raun risastór dótabúð fyrir alla sem hafa gaman af því að fylla á dótakassann í eldhúsinu. Ég er sjálfur sennilega besta dæmið um það, enda stöðugt að bæta einhverju skemmtilegu við í vöruvalið.“
Japanskir hnífar í jólapakkana
Um þessar mundir stendur undirbúningur jólanna yfir hjá fyrirtækinu. Sverrir segir það sérstaklega ánægjulegan tíma þegar fólk komi í leit að gjöfum handa matgæðingum og heimiliskokkum.
„Það getur verið lítið en nytsamlegt áhald eða eitthvað sem hefur lengi verið á óskalistanum. Japanskir hnífar leyndust til dæmis í mörgum jólapökkum í fyrra og við búumst við enn meiri áhuga á þeim fyrir þessi jól.“
Jafnframt er unnið að því að þróa vöruúrvalið áfram, bæði með nýjum birgjum og viðbótum frá þeim sem fyrirtækið vinnur þegar með. Fyrirspurnir viðskiptavina eiga þar líka sinn þátt.
„Starfsfólkið fylgist vel með því sem er að gerast á markaðnum og viðskiptavinir koma oft með fyrirspurnir um hluti sem þá vantar. Við reynum alltaf að bregðast við og finna það sem vantar.“
„Betra að eiga en vanta“
Liv kannast vel við áhuga Sverris á því sem fæst í versluninni.
„Sverrir er eins og krakki í dótabúð. Hann langar í allt í búðinni! Hann notar frasann „betra að eiga en vanta“ óspart þegar mér finnst nóg um.“
Tækifærunum til að bæta í safnið fjölgaði svo þegar þau eignuðust sumarbústað.
„Það skemmdi ekki fyrir þegar við eignuðumst sumarbústað og ég gat farið að útbúa eldhús númer tvö. Þar er líka stórt útieldhús með alls kyns grillum og græjum,“ segir Sverrir.
Þótt atvinnueldhús og heimiliseldhús séu ólíkir heimar telur hann ýmislegt úr því fyrra nýtast í því síðara. Góðir hnífar, pottar og pönnur skipti máli en skipulagið þurfi líka að vera í lagi.
„Það er gott að skipuleggja sig vel, sérstaklega varðandi tímasetningar ef um margréttaða máltíð er að ræða. Það er vont ef einn rétturinn er löngu tilbúinn á undan öllu öðru.“
Ítalskur innblástur frá Mílanó
Matarboðið að þessu sinni átti upptök sín á vörusýningu í Mílanó sem Sverrir sótti helgina á undan. Þaðan kom hann með meðal annars grappa, truffluolíu, truffluhunang, parmesanost og ítalska skinku. Ítalskur matseðill lá því beint við.
Í forrétt voru bruschettur með ítalskri skinku, parmesanostur með truffluhunangi, ferskar fíkjur og ítalskar pylsur. Í aðalrétt var saffranrisotto með osso buco og að lokum tiramisu. Máltíðinni lauk síðan með góðu kaffi og grappa.
Sverrir lætur hráefnið og bragðið ráða för þegar hann eldar.
„Ég vinn aldrei eftir nákvæmum uppskriftum. Þetta er meira svona skvetta af hinu og þessu og svo smakka ég til.“
Keypt var í matinn daginn áður en á sjálfan veisludaginn tók eldamennskan við upp úr hádegi. Spurður um lítið leyndarmál sem gerði gæfumuninn við máltíðina er svar hans einfalt.
„Ítalska eldhúsið er svo dásamlega einfalt og heiðarlegt. Engin brögð, bara að setja sálina í matargerðina.“
Liv sér um umgjörðina, borðið og móttökurnar. Þar vill hún hafa einfaldleikann í fyrirrúmi.
„Ég vil hafa allt frekar einfalt og látlaust. Dúkinn og blómin. Diskarnir, hnífapörin og glösin eru auðvitað allt úr dótabúðinni hjá Sverri. Ítalskur matur og ítölsk tónlist.“
Þegar dyrabjallan hringir er það yfirleitt Liv sem tekur á móti gestunum. Sverrir er þá enn við störf í eldhúsinu.
„Það er venjulega Liv sem tekur á móti þar sem ég er með skítuga svuntu í eldhúsinu. Best er ef matarlyktin er farin að berast um húsið, tónlistin komin í gang og fordrykkurinn klár,“ segir hann.
Svínarifin gleymast ekki
Þótt Sverrir leggi metnað í matarboðin hefur ekki alveg allt gengið áfallalaust. Eitt atvik lifir að minnsta kosti góðu lífi í minni fjölskyldunnar.
„Börnin okkar minna mig reglulega á að ég brenndi eitt sinn svínarif á grillinu. Annað kemur ekki upp í hugann. Ég legg mig fram um að hafa hlutina í lagi og næ að fela það þegar illa fer, fyrir utan þetta skipti sem krakkarnir náðu mér.“
Villisvepparisotto hefur hins vegar löngu unnið sér fastan sess hjá vinum og vandamönnum. Liv segir það líklega vera þann rétt sem Sverrir eldi oftast fyrir gesti.
Þegar þau eru tvö heima er andasalat í miklu uppáhaldi hjá henni, þótt Sverrir kjósi gjarnan eitthvað matarmeira.
Gestirnir í ítalska matarboðinu voru Halla Helgadóttir, Ingvi Þór Elliðason, Auður Einarsdóttir, Ásbjörn Gíslason og Halldóra Traustadóttir. Vináttan spannar meira en þrjá áratugi og þau hafa fylgst að í gegnum lífið.
Kvöldið varð eins og þau höfðu vonast til: notaleg samvera þar sem mikið var borðað, drukkið og hlegið langt fram á nótt.
En hvaða ráð gefa þau þeim sem langar að bjóða heim en finnst undirbúningurinn yfirþyrmandi?
Svarið er stutt:
„Panta bara mat.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







