Er búið að ráða næsta njósnara hennar hátignar? Meðleikari mun hafa kjaftað af sér á djamminu
Enski leikarinn Josh O'Connor er næsti James Bond ef marka má slúðrið manna á milli á krám í London.
Meðleikari O'Connor í þáttunum Golden Boy er sannfærður um að leikarinn muni taka við hlutverki njósnara hennar hátingar og fullyrðir að O'Connor hafi aðspurður á djammi þeirra kvöld eitt játað því að hafa landað hlutverkinu.
„Ég rakst á einn af meðleikurum Josh úr Golden Boy í The French House,“ sagði heimildarmaður við fjölmiðla á fimmtudag. „Margir þekktu leikarana og báðu þá um sjálfsmyndir og við spjölluðum saman í horni, alveg óvart. Upp úr þurru og vel vökvaðir eftir nokkur bjórglös hrópuðu þeir upphátt að Josh væri næsti James Bond,“ hélt heimildarmaðurinn áfram.
Hann bætti við að meðleikarinn væri staðfastur á því að O'Connor væri ráðinn.
„Þau sögðu að hann hefði trúað þeim fyrir því að fá hlutverkið þegar leikarar Golden Boy fengu sér hátíðardrykk eftir að sýningu leikritsins lauk á hrekkjavökunni,“ hélt heimildarmaðurinn fram. Heimildarmaðurinn fullyrti að með leikarinn væri „greinilega mjög stoltur“ af O'Connor.
Josh O'Connor
Frumsýning á næstu James Bond-mynd, þekkt sem Bond 26, er áætluð árið 2028, þó að opinber dagsetning hafi ekki verið tilkynnt enn. Amazon MGM Studios framleiðir og hefur söguþræði verið haldið leyndum.
Aðalumræðuefnið snýr að því hver taki við keflinu af Daniel Craig. Meðal þeirra nafna sem hafa verið nefnd eru O'Connor, Jacob Elordi, Jack Lowden og Callum Turner.
Í nýju viðtali við BBC á þriðjudag sagði O'Connor að það væri mikill heiður að vera tilnefndur til að leika Bond.
„Þetta er ótrúlega furðuleg stund ... jafnvel að vera nafngreindur í sömu setningu og verið tekinn til greina fyrir eitthvað slíkt,“ sagði O'Connor við miðilinn. „Að vera tekinn til greina í sama flokki er ótrúlegt.“ Hann útskýrði orð sín ekki nánar og útskýrði að hann væri „hræddur“ um að það væri „ekkert annað að segja“.
Daniel Craig, 58 ára, lét af hlutverkinu eftir að hafa leikið í No Time To Die árið 2021.
Nýlega lék O'Connor Dr. Daniel Kellner í vísindaskáldskaparspennumyndinni Disclosure Day. Hann er einnig þekktur fyrir hlutverk sitt í vinsælu sjónvarpsþáttunum The Crown þar sem hann lék Karl konung. Árið 2021 vann hann Primetime Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum og tók þar með heim verðlaunin fyrir besta leikara í aðalhlutverki í dramaþáttaröð.
Josh O'Connor
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗