Vilja útflutningshöft á óunninn afla

Hallveig Ólafsdóttir.

Hallveig Ólafsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Starfshópur vinnur að tillögum til ráðherra vegna afla sem fluttur er óunninn úr landi. Minnisblað verður innlegg í breytingar sem unnið er að á lögum um stjórn fiskveiða, að því er fram kom í máli Hallveigar Ólafsdóttur, skrifstofustjóra í atvinnuvegaráðuneytinu, á Sjávarútvegsráðstefnunni í gær. Hún flutti ræðu ráðherra sem er erlendis.

Á ráðstefnunni var fjallað um mögulega orðsporsáhættu fyrir vörumerki íslensks bolfisks sem dæmi væru um að hefði ratað gamall í erlendar vinnslur.

Aukinn útflutningur á óunnum fiski var í umræðum tengdur við strandveiðar og VS-pott og stungið upp á að setja honum skorður.

Í ræðu Hallveigar kom fram að unnið væri að fleiri lagabreytingum, svo sem frumvarpi um stórþörunga.

Þá væri mikið ákall eftir nýrri löggjöf um lagareldi. „Mál sem er ekki á þingmálaskrá vetrarins en ráðherra bindur engu að síður vonir við að nái fram að ganga,“ sagði hún. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅