Lögregla vanbúin í erfiðustu verkefnin

Sérsveit ríkislögreglustjóra.

Mikið af búnaði sérsveitar ríkislögreglustjóra er komið til ára sinna og uppfyllir ekki lengur öryggisstaðla. Þetta segir Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn.

„Þegar ég var í þessum verkefnum var fjárhagurinn oft knappur en að setja sérsveitarmenn í útköll á einkabílum er náttúrlega grafalvarlegt mál,“ segir Stefán, en Morgunblaðið greindi frá því á miðvikudag að sérsveitin hefði að undanförnu í einhverjum tilfellum þurft að notast við einkabíla lögreglumanna til að sinna bæði útköllum og æfingum.

Þá greindi blaðið einnig frá því að sérsveitin hefði tekið í notkun bifreið sem framleidd var á síðustu öld og hafði áður verið geymd á minjasafni lögreglu.

Stefán Vagn tilheyrði sérsveitinni um sjö ára skeið. „Sérsveitin er með alls kyns búnað eins og sjóöryggisbúnað, sigbúnað og allt mögulegt sem er einfaldlega á dagsetningum. Þú setur ekki menn í búning sem er útrunninn.“

Stefáni þykir staðan sem upp er komin kalla á grundvallarspurningar um sérsveitina. „Ég hef engan hitt sem ekki vill halda henni úti en þá þarf að tryggja að hún hafi búnað, þjálfun og fjármagn til að reka sig. Nú þarf að taka ákvörðun um hvort menn vilji hafa þessa sveit til taks eða ekki. Verkefnin sem sérsveitin er send í eru erfiðustu, hættulegustu og flóknustu verkefnin sem lögreglan tekur að sér. Ef við sjáum ekki sóma okkar í því að hún hafi það sem þarf til að sinna því er illa fyrir okkur komið,“ segir hann og bendir á að sérsveit sem geti brugðist fljótt við sé einnig öryggisþáttur fyrir hina almennu lögregluþjóna.

„Ef fólkið í lögreglunni lendir í hættulegum aðstæðum, þurfa þau að geta treyst því að sérsveitin muni koma og aðstoða.“

Stefán Vagn Stefánsson.

Innlegg í umræðu um lögreglu

Grímur Grímsson, alþingismaður og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, segir jákvætt að aðbúnaður sérsveitar ríkislögreglustjóra sé til umræðu og að marka mætti stefnu um stærð sérsveitarinnar. „Það þarf ekki að hafa mörg orð um að sérsveitarmenn þurfa að hafa viðeigandi bílakost og góðan aðbúnað. Þetta er sá partur löggæslunnar sem við ætlumst til að takist á við erfiðustu útköllin og því er gríðarlega mikilvægt að vel sé að þeim búið. Mér finnst þetta vera innlegg í almenna umræðu um fjárveitingar til lögreglu,“ segir Grímur.

„Í þessu tilfelli eru það fjárveitingar til sérsveitar sem fá athygli og það er bara gott. Áhugavert er þá að horfa til þess hver stefnan sé varðandi stærð sérsveitarinnar, þ.e. fjölda sérsveitarmanna og viðeigandi bílakost.“

Telur Grímur að fjárveitingar til lögreglu þurfi að komast betur á dagskrá? „Hún er alveg á dagskrá og á það hefur verið bent að fjölga þurfi í lögreglunni. Í fyrra var bætt við einum milljarði í málaflokkinn og fjölgað um 50 lögreglumenn. Ekki hefur orðið fjölgun á þessu ári og er ekki fyrirsjáanleg á næsta ári en ég vonast til þess að fjölgun verði meðal lögreglumanna 2028.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅