NATO í rannsóknir við Jökulsárlón

Jökulsárlón verður vettvangur rannsókna NATO næstu tvær vikurnar.

Jökulsárlón verður vettvangur rannsókna NATO næstu tvær vikurnar. mbl.is/Eyþór

Náttúruverndarstofnun hefur veitt Atlantshafsbandalaginu, NATO, leyfi til að gera rannsóknir og tækniprófanir við Jökulsárlón. Áformað er að prófa m.a. sjálfvirk kerfi, neðansjávarbúnað, skynjara og drónatækni við krefjandi aðstæður til undirbúnings framtíðarrannsóknum á norðurslóðum.

Þetta kemur fram í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Það var Rannsóknar- og tilraunamiðstöð NATO sem sótti um rannsóknarleyfið til Náttúruverndarstofnunar og veitti stofnunin leyfið með tilteknum skilyrðum, svo sem að þess verði gætt að valda ekki skemmdum á landi, þ.m.t. gróðri, jarðvegi og jarðmyndunum. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅