„Það er í verið að stinga menn í bakið á Íslandi“
„Á Íslandi eru margir þjálfarar að keppa um sömu störfin og því miður er það þannig að það er mjög sjaldgæft að félög auglýsi eftir þjálfara,“ sagði knattspyrnuþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson í samtali við mbl.is.
Sigurður Ragnar, sem er 52 ára gamall, gerði NSÍ frá Runavík að Færeyjarmeisturum á dögunum en hann tók við þjálfun liðsins í desember á síðasta ári. Þetta var annar meistaratitill félagsins í 69 ára sögu þess en félagið varð einnig meistari árið 2007.
Óvíst er hvað tekur við hjá Sigurði en honum stendur til boða að halda áfram með liðið og þá er hann einnig spenntur fyrir því að snúa aftur heim til Íslands.
Búið að ákveða hver tekur við
„Það er oft þannig að það er búið að ákveða hver tekur við áður en þjálfarinn er látinn fara. Það er verið að stinga menn í bakið á Íslandi finnst mér,“ sagði Sigurður.
„Manni finnst ekkert alltaf endilega ráðið í þjálfarastörf eftir fagmennsku eða reynslu. Þú þekkir einhvern eða þekkir til einhvers. Svo hjálpar það líka ef umræðan er jákvæð í fjölmiðlum eða hlaðvörpum.
Staðan er líka sú að það eru ofboðslega margir komnir með UEFA Pro-þjálfaragráðu og félög vilja oft og tíðum ráða félagsmenn,“ sagði Sigurður í samtali við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗