Eldhúsið sem ríka fólkið tímir ekki að kaupa

Vikan var viðburðarík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.

Íslensk ofurpar keypti 285 milljóna hús

Einstakt einbýlishús var auglýst til sölu fyrr á árinu. Um er að ræða 377 fm fasteign sem reist var 1969. Húsið stendur á 1520 fm lóð sem er vel nýtt undir heitan pott og saunu-tunnu svo eitthvað sé nefnt. Rut Káradóttir innahússarkitekt hannaði efri hæð hússins og er þar glæsileg eldhúsinnrétting með tækjaskáp og góðri lýsingu. Húsið stendur við Hegranes í Garðabæ. 

Íslenskt ofurpar keypti hús í Arnarnesinu.

Íslenskt ofurpar keypti hús í Arnarnesinu. Samsett mynd

Eldhúsið sem ríka fólkið tímir ekki að kaupa

Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata selja íbúð sína með Bulthaup-eldhúsi. Marta María greinir frá því að þetta sé eldhúsið sem ríka fólkið þrái en tími ekki að kaupa. 

Þorleifur Örn og Erna Mist hafa sett íbúðina við Sörlaskjól á sölu. Samsett mynd

Hvernig nær Herdís rauðvíni úr jakka?

Forstjóri Sýnar leitaði ráða hjá Mörtu Maríu Winkel um hvernig hún næði rauðvíni úr hvítum jakka. Marta María leitaði til Mörtu Maríu Arnarsdóttur frænku sinnar, skólastjóra í Hússtjórnarskólanum, og fékk svar! 

Marta María Arnarsdóttir skólastóri í Hússtjórnarskólanum veit hvernig best er að ná rauðvíni úr hvítum jakka. Samsett mynd

Allt í gangi hjá Katrínu! 

Katrín Jakobsdóttir kann að skemmta sér og halda partí! 

Björk Guðmundsdóttir á von á barni.

Björk Guðmundsdóttir á von á barni. Samsett mynd/Instagram

Ágústa og Dr. Gunni 

Ágústa Kolbrún Róberts og Dr. Gunni kunna að lifa lífinu! 

Sverrir Jakobsson, Katrín Jakobsdóttir og Erna Erlingsdóttir.

Björk á von á barni! 

Spennandi tímar eru fram undan hjá leikkonunni og handritshöfundinum Björk Guðmundsdóttur og kærasta hennar, körfuboltaþjálfaranum og Skagfirðingnum Rúnari Áka Emilssyni, en þau eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Ágústa Kolbrún Roberts og Dr. Gunni, Gunnar Lárusson.

Ágústa Kolbrún Roberts og Dr. Gunni, Gunnar Lárusson. mbl.is/Anton Brink

Allir á rauða dreglinum! 

Það var öllu til tjaldað á rauða dreglinum í Háskólabíói í gærkvöldi þegar hátíðarforsýning á Iceguys – The Movie fór fram.

Góða helgi! 

Ljósmynd/Hildigunnur Ólafsdóttir

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅