Nína Richter skrifar: Fólk sem er betra en þú
Ég sat ráðstefnu á dögunum þar sem gestum voru gefin nokkur heilræði í upphafi, svona til þess að tryggja að tengslamyndun yrði með besta móti. Eitt af þessum heilræðum var: Gerðu ráð fyrir því að allir vilji kynnast þér.
Þessi lína er ein af þessum ofsalega einföldu sem eru samt svo flóknar. Það er ekkert smámál að setja sig í þær stellingar að allir vilji kynnast manni. Maður þarf að vera móttækilegur og tilbúinn að mæta fólki með því sem háfleygir hugsuðir kalla „örlátri túlkun.“ Allir hafa einhverja áhugaverða sögu að segja eða eiga einhverja góða hlið þarna undir. Það er misdjúpt á henni, en hún er þarna.
Að vera manneskja sem allir vilja kynnast. Þá þarf maður náttúrlega að vera skemmtilegur og áhugaverður án þess að reyna það, vel lesinn en ekki leiðinlegur, fyndinn en ekki yfirþyrmandi og helst með eitthvað spennandi í gangi. Jafnvel erlendis. Það er alltaf aðeins meira varið í það sem maður er að gera ef það þarf að fljúga þangað.
Annars eru svona vinnuviðburðir skemmtilegt leikhús. Við erum öll bara apar í fötum. Ég var í síðustu viku erlendis að larpa sem lögfræðingur. Núna er ég að mæta á Airwaves-ráðstefnu sem menningarblaðamaður og bráðum fer ég í aðra ráðstefnuferð í þriðja hlutverkinu. Maður er síðan misöruggur í þessum hlutverkum. Þeim fylgir mismunandi orðaforði, klæðnaður og hegðun.
Á ráðstefnum er þægilegt að geta byrjað á starfsheitinu. Hvað gerir þú? Þá veit maður nokkurn veginn í hvaða skúffu á að setja viðkomandi og hvaða útgáfu af sjálfum sér er best að draga fram. Ég hef verið með nógu mörg starfsheiti til að vita að þau hafa heilmikil áhrif á það hvernig fólk talar við mann. Stundum breytast spurningarnar, stundum áhuginn. Þegar ég vann á RÚV varð fólk stundum bara reitt við mig þegar ég sagðist vinna þar. Aðrir urðu gasalega uppveðraðir og tilgerðarlegir. Eftir að ég fór að læra lögfræði fékk ég síðan einhverjar nýjar útgáfur af viðbrögðum sem ég er enn að venjast. Ég er samt með nokkurn veginn sama heilann á milli eyrnanna og sömu þörfina fyrir að segja eitthvað sem mér finnst fyndið á óheppilegum tíma.
Við Íslendingar fáum samt oft fríspjald í þessum aðstæðum erlendis. Það er nóg að segja hvaðan maður er til þess að maður sé orðinn áhugaverður eða skrýtinn. Maður hefur ekkert þurft að leggja sérstaklega mikið á sig. Bara fæðast á þessu skeri. Viðmælendur komast líka langt með því að segja að náttúran hérna sé falleg, það er eins og eftir handriti. Það hafi sjálft komið hingað, eða frænka þess eða frændi, og séð norðurljós og það hafi verið ólýsanleg upplifun. Þá stöndum við þarna og tökum við hrósinu eins og við höfum persónulega komið að uppsetningu norðurljósanna. Þetta virkar næstum því alltaf.
Næstum því.
Vinur minn sagði mér á dögunum frá því þegar hann var í partíi erlendis og einhver djöfulsins Færeyingur dúkkaði upp og hann fékk alla athyglina. Þarna var sem sagt kominn maður frá enn þá minni eyjum með enn þá færri íbúum. Enn þá meiri einhyrningur. Enn þá meira krútt í augum fólksins á meginlandinu.
„Maður var orðinn bara eins og einhver venjulegur Dani,“ stundi vinur minn. Hann var ógeðslega óhress með þetta. Ömurleg þróun á annars ágætu kvöldi.
Síðan er hitt. Sumt fólk gefur frá sér áru, eins og það sé betra en annað fólk. Mér finnst þetta eiginlega mest spennandi fólkið og ég laðast gjarnan að því eins og mý að mykjuskán. Kannski er það tengt áfallasögu úr æsku en ég ætla ekki að kryfja hana á þessum vettvangi, að minnsta kosti ekki í dag. En það getur verið fullt af hlýju og skemmtilegu fólki í herberginu en athygli mín leitar samt að manneskjunni sem virðist síst hafa áhuga. Mér skilst að kettir séu líka svona.
Ég las svo góða speki um daginn, gott ef það var ekki á Instagram. Að í hvert skipti sem einhver segir: „Þú heldur að þú sért betri en ég,“ sé viðkomandi í raun að segja: „Ég held að þú sért betri en ég.“ Þetta er auðvitað afskaplega þægileg kenning. Samkvæmt henni get ég túlkað allar ásakanir um yfirlæti sem dulbúin aðdáendabréf. Það er að minnsta kosti örláta túlkunin, þó að örlætið beinist aðallega að mér sjálfri. En við getum auðvitað ekkert verið inni í höfðinu á öðru fólki. Sú sem virðist yfir alla hafin gæti verið feimin, þreytt eða að reyna að muna hvort að hún hafi tvílæst útihurðinni. Eða kannski sér hún bara illa.
Það hjálpar ekki í þessu samskiptasalati að vera nærsýn. Ég hef oft strunsað fram hjá fólki sem ég þekki vel án þess að heilsa. Fyrir vikið grunar fólk að ég sé gríðarlega góð með mig. Of merkileg til að heilsa. Þegar ég er í raun of blind til að heilsa.
Mér skilst að við séum mörg í þessari stöðu og gætum stofnað hagsmunasamtök. Samtökin gætu sent út fréttabréf með nafnalista yfir fólk sem sér illa, notar ekki gleraugu á almannafæri og hefur líklega ekki heilsað. Það gæti dregið úr núningi. Fréttabréfið þyrfti auðvitað að vera með stóru letri svo félagsmenn sem nenna ekki að nota gleraugun sín gætu líka lesið það.
Fólk hefur tapað sér við mig úti á götu yfir því að vera „snubbað“. Fullorðið fólk bara froðufellandi með spurningar á vörum um hver ég þykist eiginlega vera. Það er rosalega góð spurning. En fólk hefur þá gengið um með þá vissu að ég hafi sannarlega séð viðkomandi og tekið meðvitaða ákvörðun um að það væri ekki kveðjunnar virði. Svo gengur misskilningurinn í allar áttir. Einu sinni var ég á RIFF og handviss um að Werner Herzog væri á svæðinu. Ég var rosalega spennt þangað til Werner Herzog kom upp að mér og vinum mínum og spurði á íslensku hvort við vildum panta eitthvað fleira af barnum. Ég hef með þessu móti séð mun fleira frægt fólk en hefur raunverulega séð mig.
Heimspekingurinn Immanuel Kant greindi á milli hlutanna eins og þeir birtast okkur og hlutanna eins og þeir eru í sjálfum sér. En ég hefði gjarnan viljað hafa hann þarna til að útskýra fyrir vinum mínum að málið væri flóknara en svo að ég þyrfti bara að setja upp gleraugun. Upplifunin er raunveruleikinn og í minni upplifun hafði Werner Herzog verið á staðnum. Í sinni upplifun hafði íslenskur barþjónn verið á vakt.
Kannski er þess vegna ágætt að gera ráð fyrir velvilja, áður en maður fer að semja heila sögu um það hvað öðrum finnist um mann. Það er alveg nóg að mæta á staðinn án þess að þurfa líka að leika öll hlutverkin í höfðinu á hinum gestunum. Ég ætla því að taka heilræðið með mér á næsta viðburð, þ.e.a.s. gera ráð fyrir því að allir vilji kynnast mér og kannski að muna eftir gleraugunum, svo ég hafi einhverja hugmynd um hverjum ég er að kynnast. Svo er alltaf gott að grípa í blindu eftir hentisemi og vísa þá bara á hlekkinn á þessa grein ef einhver fer að tuða í mér.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗