„Við erum líka hörkulið“

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson sækir að körfu Álftanes í kvöld.

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson sækir að körfu Álftanes í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

„Ég er virkilega ánægður með sigurinn. Mér fannst þetta vera skemmtilegur leikur,“ sagði fyrirliði KR, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, eftir sigur á Álftanesi í toppslag 5. umferðar úrvalsdeildar karla í körfubolta.

„Við byrjuðum mjög vel sem er andstæðan við það sem við höfum verið að gera í leikjunum á undan. Við höfum verið að taka okkur tíma til að koma okkur í gang en núna byrjuðum við frá fyrstu mínútu og gerðum það vel.

Við áttum flottan fyrri hálfleik og leiddum hann allan. Síðan í seinni hálfleik gáfum við aðeins eftir og hleyptum þeim inn í leikinn.

En heilt yfir gerðum við vel og náðum að lokum að sigla þessum heim í Vesturbæinn í hörku fjórða leikhluta.“

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson býr sig undir að sækja að körfu Álftanes. mbl.is/Eythor Arnason

Þriðji leikhlutinn var ykkur erfiður. Þeir jafna, komast yfir og virðast ætla að taka öll völd. Þið takið leikhlé og reynið að ná vopnum ykkar á þessum tímapunkti. Hvernig var tilfinningin fyrir leiknum þarna?

„Hún var náttúrulega ekki góð. Við þurftum bara að róa okkur, slaka á og vera aðeins harðari af okkur.

Álftanes er mjög gott í þessu þar sem þeir sprengja liðin á þessum tímapunktum leikjanna. Þeir gera það mjög vel og við vissum af því og vorum því búnir að undirbúa okkur fyrir að þeir myndu reyna þetta.

En þetta var hörkuleikur og ég myndi segja að fráköstin hafi kannski verið ákveðinn lykill í þessu hjá okkur ásamt því að við héldum þeim í skefjum í þessum hröðu sóknum. Þeir hafa verið að skora mikið og verið að skora alveg 120 stig í leik.“

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson ræðir við einn af dómurum leiksins.

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson ræðir við einn af dómurum leiksins. mbl.is/Eythor Arnason

Það hlýtur að vera gott fyrir sjálfstraustið að vera fyrsta liðið og eina liðið hingað til sem vinnur Álftanes, ekki satt?

„Jú, við erum líka hörkulið. Þetta mót er bara rétt að byrja. Auðvitað er ég ánægður með að hafa unnið þennan leik en við þurfum bara að setja fókusinn á næsta leik,“ sagði Þórir í samtali við mbl.is.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅