„Hefurðu verið stunginn? Hvar þá? Ég held nú ekki, vinur“

Vickrum Digwa hefur verið dæmdur fyrir að myrða Henry Nowak. Lögregla sneri þó öllu á hvolf í byrjun og nú er til rannsóknar hvað olli því. Samsett mynd

Fjölskylda hins 18 ára gamla Henry Nowak, sem var myrtur í Southampton á Englandi í desember í fyrra, sakar lögreglu um að hafa blekkt sig og leynt upplýsingum um síðustu stundir hans. Lögreglumenn handjárnuðu piltinn þar sem hann lá dauðvona eftir hnífaárás, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hans um hjálp.

Fjölskyldan segir lögreglu upphaflega hafa gefið sér rangar upplýsingar um viðbrögð lögreglumannanna og jafnframt látið líta út fyrir að Henry hefði sjálfur átt upptökin að átökunum sem leiddu til dauða hans.

Þetta kemur fram í viðtölum vegna nýrrar heimildarmyndar bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV, Dear Henry: Our Fight for Justice, sem sýnd var í kvöld þar í landi. Breska dagblaðið Telegraph greinir frá frásögn fjölskyldunnar og viðbrögðum lögregluyfirvalda.

Heimildarmyndina má sjá hér neðar.

Spurðu um stjórnmálaskoðanir fjölskyldunnar

Henry var á fyrsta ári í bókhalds- og fjármálanámi við háskólann í Southampton þegar Vickrum Digwa réðst á hann með hnífi 3. desember 2025.

Digwa, sem er síki, hélt því ranglega fram við lögreglu að Henry hefði viðhaft kynþáttaníð í sinn garð, slegið sig og rifið af sér vefjarhöttinn. Lögreglumenn sem komu á vettvang virðast í fyrstu hafa lagt trúnað á frásögn hans og litið á Henry sem árásarmanninn.

Fjölskyldan segir grunsemdir sínar um vinnubrögð lögreglunnar hafa vaknað strax kvöldið sem henni var tilkynnt um andlát Henrys.

Lucy Ross, móðir hans, segir lögreglumenn hafa spurt um stjórnmálaskoðanir Henrys og fjölskyldunnar skömmu eftir að þau fengu fregnir af dauða hans.

„Ég man að mér fannst þetta mjög undarleg spurning. Það var nýbúið að segja þér að sonur þinn hefði verið myrtur og svo spurðu þeir að þessu,“ segir hún.

Blómaskreytingar til minningar um Henry Nowak sjást fyrir utan Portswood-lögreglustöðina í Southampton í júní síðastliðnum. AFP

Lögreglan breytti frásögn sinni

Mark Nowak, faðir Henrys, segist hafa fengið símtal frá lögreglu daginn eftir morðið, þegar hann var á heimleið eftir að hafa borið kennsl á lík sonar síns.

Lögreglan vildi fá samþykki hans fyrir fréttatilkynningu þar sem nafn Henrys yrði birt í fyrsta sinn. Honum brá aftur á móti þegar hann heyrði hvernig atburðarásinni var lýst.

Að hans sögn var sonur hans þar nánast gerður að árásarmanninum.

„Það var mikið áfall að heyra að verið væri að sverta mannorð fórnarlambsins á þessum tímapunkti,“ segir hann.

Mark segir frásögn lögreglunnar af atburðunum hafa breyst í hvert sinn sem fjölskyldan átti samskipti við hana.

Í fyrstu hafi fjölskyldunni verið sagt að lögreglumenn hefðu áttað sig á því hversu alvarlega Henry var slasaður og þegar í stað hafið skyndihjálp.

Síðar hafi þó komið í ljós að lögreglumennirnir höfðu raunar handtekið Henry áður en þeir reyndu að koma honum til hjálpar.

„Það var okkur mikið áfall hvernig frásögnin af því sem gerðist þetta kvöld breyttist. Okkur fannst verið að blekkja okkur. Okkur fannst við ekki fá að heyra sannleikann,“ segir Mark.

Sagðist ekki geta andað að minnsta kosti níu sinnum

Upptökur úr búkmyndavélum lögreglumannanna sýna Henry liggja alvarlega særðan á jörðinni á meðan lögreglumenn handjárna hann.

Hann segir lögreglumönnunum ítrekað að hann hafi verið stunginn og að hann geti ekki andað. Að minnsta kosti níu sinnum segist hann ekki ná andanum.

Þegar Henry sagði að hann hefði verið stunginn spurði einn lögreglumannanna: „Hefurðu verið stunginn? Hvar þá? Ég held nú ekki, vinur.“

Faðir Henrys og stjúpmóðir hans, Katie Nowak, fengu ekki að sjá upptökurnar fyrr en á fyrsta degi réttarhaldanna yfir Digwa í maí síðastliðnum. Móðir hans, Lucy Ross, hefur ekki treyst sér til að horfa á þær.

Áður hafði sjálfstæð eftirlitsstofnun með störfum lögreglunnar, Independent Office for Police Conduct (IOPC), tjáð fjölskyldunni að ekki hefðu komið fram vísbendingar um nægilega alvarleg brot lögreglumannanna til að réttlæta rannsókn á hugsanlegum agabrotum þeirra.

Þetta kom fram í bréfi stofnunarinnar til fjölskyldunnar, dagsettu 10. apríl. Í júlí var svo tilkynnt að tveir lögreglumenn sættu rannsókn vegna gruns um alvarleg brot í starfi.

Katie Nowak lýsir því sem hreinni skelfingu að hafa séð upptökurnar og hugsað til örvæntingarinnar sem Henry hljóti að hafa upplifað.

„Þetta er versta martröð sem hægt er að hugsa sér,“ segir hún.

Faðir hans segir framkomu lögreglunnar óafsakanlega.

„Þegar búið er að slátra þér og þú sérð bláu ljósin, þá finnst þér réttlætið vera á leiðinni. Þú heldur að þú sért að fara að fá hjálp. En Henry fékk hvorugt. Og svo dó hann.“

Lögreglustjórinn viðurkennir mistök

Alexis Boon, lögreglustjóri Hampshire og Isle of Wight, hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að lögreglan hafi brugðist Henry á hans hinstu stund.

„Morðið á Henry var hræðilegur harmleikur og hugur okkar er áfram hjá fjölskyldu hans og öllum þeim sem þótti vænt um hann,“ segir Boon.

„Mér þykir óendanlega leitt að á síðustu stundum hans, þegar hann þurfti mest á okkur að halda, brugðumst við honum.“

Upptökurnar af handtöku Henrys vöktu mikla reiði þegar þær voru birtar opinberlega og leiddu til mótmæla í Bretlandi.

Digwa var í júní dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið og þarf að afplána að minnsta kosti 21 ár áður en hann getur átt möguleika á reynslulausn.

Kiran Kaur, móðir Digwa, var dæmd fyrir að fjarlægja morðvopnið af vettvangi og fela það til að vernda son sinn.

Kanna hvort trúarbrögð hafi haft áhrif

Shabana Mahmood, innanríkisráðherra Bretlands, tilkynnti 26. október um sjálfstæða rannsókn á málinu.

Meðal þess sem á að kanna er hvort menningarleg tillitssemi hafi orðið til þess að lögregla, skólayfirvöld og félagsþjónusta veigruðu sér við að grípa inn í þegar kom að óheilbrigðri áráttu Digwa fyrir trúarlegum hnífum, að því er fram kemur í umfjöllun Telegraph.

Rannsókninni stýrir Alex Chalk, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bretlands, og verður meðal annars farið yfir hvort yfirvöld hafi misst af tækifærum til að koma í veg fyrir morðið. Þá verður einnig kannað hvernig komið var fram við fjölskyldu Henrys eftir andlát hans.

Eftirlitsstofnun lögreglunnar rannsakar jafnframt hvort kynþáttur eða trúarbrögð Henrys eða fjölskyldu Digwa hafi haft áhrif á viðbrögð og ákvarðanir lögreglumannanna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅