Rubio situr sem fastast

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AFP

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafnar fréttum um að hann íhugi að yfirgefa ríkisstjórn Donalds Trumps í kjölfar ósigurs Repúblikana í þingkosningunum.

Hann segist alltaf hafa ætlað sér að starfa fyrir forsetann út kjörtímabilið.

Þetta kom fram í viðtali Rubios við bandaríska dagblaðið The New York Times í dag. Spurður um fréttir af mögulegri brottför sinni sagðist hann satt best að segja ekki vita hvaðan slíkar sögur kæmu.

Vísa fréttaflutingi á bug

Fyrr í dag hafði Bloomberg-fréttastofan greint frá því að Rubio væri að velta fyrir sér að hætta. Samkvæmt frétt Bloomberg hafði hann rætt við embættismenn í Hvíta húsinu um að stíga til hliðar en verið beðinn um að sitja áfram.

Utanríkisráðuneytið bandaríska hefur vísað fréttaflutningi Bloomberg alfarið á bug og sagt hann algjöran uppspuna.

Rubio, sem gegnir einnig embætti þjóðaröryggisráðgjafa Trumps, er víða talinn líklegur arftaki Trumps í forsetakosningunum 2028.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅