Segir stórt samkomulag í sjónmáli

Forsetahjónin Melania og Donald Trump.

Forsetahjónin Melania og Donald Trump. AFP/Jim Watson

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stórt samkomulag við Rússa í sjónmáli sem nái ekki aðeins til Úkraínu heldur hugsanlega allrar Evrópu.

Ummælin féllu eftir að Melania Trump forsetafrú tók á móti fulltrúum Rússlands og Úkraínu í Hvíta húsinu í dag.

Stórt og fallegt samkomulag

Trump greindi frá því að hann hefði átt óvæntan fund með Kirill Dmitríev, sérlegum erindreka Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, í kjölfar viðburðarins sem forsetafrúin stóð fyrir. Hann vildi ekki upplýsa hvað þeim fór á milli en fullyrti að samkomulag væri í vændum.

„Ég get ekki sagt ykkur hvað við ræddum. En ég get sagt ykkur að það verður gert samkomulag og það verður stórt,“ sagði Trump við fréttamenn í Hvíta húsinu.

„Það mun ná til fleiri en Úkraínu og ég gæti jafnvel sagt að það nái til allrar Evrópu. Þetta verður stórt og fallegt samkomulag og allir verða himinlifandi.“

Trump sagðist ekki hafa hitt úkraínsku fulltrúana sem einnig voru staddir í Hvíta húsinu.

Eftir viku fara fram þríhliða viðræður Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna í Abú Dabí.

Melania lætur til sín taka

Fundurinn í Hvíta húsinu, þar sem rússneskir og úkraínskir embættismenn komu saman, átti sér engin fordæmi.

Markmiðið var að byggja á sex daga staðbundnu vopnahléi sem Melania Trump hafði milligöngu um í bænum Oleskí í Úkraínu.

„Nú verðum við að nýta það hugrekki sem við sýndum í Oleskí til að finna sameiginlegan grundvöll í umhyggju fyrir saklausu fólki sem þjáist,“ sagði forsetafrúin við blaðamenn.

„Saman getum við skapað eitthvað varanlegra en tímabundið vopnahlé.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅