Sjöfalt oftar sakfelldir fyrir kynferðisbrot
Afbrotatölur eftir ríkisfangi hafa verið til umræðu hér á landi, meðal annars í Spursmálum á mbl.is á föstudag. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Afganskir ríkisborgarar í Englandi og Wales voru hlutfallslega um sjö sinnum oftar sakfelldir fyrir kynferðisbrot en breskir ríkisborgarar á árunum 2020 til 2022, að teknu tilliti til aldurs og kyns. Þetta kemur fram í nýrri greiningu breska tímaritsins The Economist, sem telur niðurstöðuna áhyggjuefni.
Munurinn er þar þó sagður talsvert minni en Nick Timothy, talsmaður breska Íhaldsflokksins í dómsmálum, hefur haldið fram. Framsetning tímaritsins á niðurstöðunum hefur jafnframt sætt gagnrýni.
Umræða um afbrot, ríkisfang og menningarlegan bakgrunn hefur einnig verið áberandi hér á landi síðustu daga, meðal annars í Spursmálum á mbl.is sl. föstudag. Í febrúar urðu jafnframt deilur um afbrotatölur eftir ríkisfangi þegar dómsmálaráðuneytið þurfti að leiðrétta svar um fjölda ákærðra erlendra ríkisborgara.
Breska tímaritið The Economist hefur skoðað tíðni sakfellinga fyrir kynferðisbrot í Englandi og Wales. Niðurstöðurnar hafa vakið deilur. Ljósmynd/Colourbox
Fjöldi Afgana vanmetinn
Breska fréttaritið The Economist fjallar um fullyrðingu Timothys um að Afganar séu yfir tuttugu sinnum líklegri en Bretar til að fremja kynferðisbrot.
Samkvæmt tímaritinu byggðist útreikningurinn á áætlun um að aðeins 13 þúsund Afganar byggju í Bretlandi. Að baki þeirri tölu lágu hins vegar svör innan við sextíu manns í mannfjöldakönnun.
Breska hagstofan hætti að birta slíkt mannfjöldamat eftir einstökum ríkisföngum árið 2021 vegna dræmrar þátttöku í könnuninni.
The Economist studdist því við manntalið frá 2021. Þar voru skráðir um 21.400 íbúar í Englandi og Wales sem höfðu annaðhvort afganskt vegabréf eða voru vegabréfslausir en sögðust vera Afganar.
Eftir valdatöku talíbana í ágúst sama ár fjölgaði Afgönum í Bretlandi verulega. Um 38 þúsund Afganar komu til landsins á næstu átján mánuðum. Með hliðsjón af upplýsingum um komu fólks til landsins, brottflutning og veitingu bresks ríkisborgararéttar áætlar The Economist að um 45 þúsund Afganar hafi búið í Englandi og Wales í árslok 2022.
James Fransham, gagnablaðamaður The Economist, fór nánar yfir útreikningana í pistli 28. október. Þar bendir hann á að enginn viti í raun nákvæmlega hversu margir afganskir ríkisborgarar búi í Bretlandi.
Munurinn enn sjöfaldur
Greiningin var byggð á gögnum sem rannsóknarstofnunin Migration Observatory við Oxford-háskóla aflaði frá breska dómsmálaráðuneytinu.
Gögnin ná til sakfellinga og formlegra áminninga lögreglu á árunum 2010 til 2024. Af þeim um 106 þúsund kynferðisbrotum sem þar eru skráð voru 409, eða 0,39 prósent, skráð á einstaklinga sem gáfu upp afganskt ríkisfang.
Við samanburð á tíðni sakfellinga meðal afganskra og breskra ríkisborgara skoðaði tímaritið sérstaklega árin 2020 til 2022 og áætlaði meðalfjölda Afgana í landinu á tímabilinu.
Við útreikningana var tekið tillit til aldurs og kyns, enda er afganski hópurinn að meðaltali um tíu árum yngri en íbúar Bretlands almennt. Karlar eru jafnframt í miklum meirihluta þeirra sem sakfelldir eru fyrir kynferðisbrot.
Að þessu teknu tilliti reyndist tíðni sakfellinga meðal Afgana um sjöföld á við tíðnina meðal Breta.
Tímaritið tekur þó fram að nokkur óvissa sé um niðurstöðuna. Fáeinir síbrotamenn geti haft veruleg áhrif á tölurnar. Þá geti einnig skipt máli hversu mörg brot séu tilkynnt og hversu mörg þeirra upplýsist.
Samanburðurinn nær auk þess til kynferðisbrota af ýmsu tagi, ekki eingöngu nauðgana.
Sambærilegt mynstur hefur komið fram í rannsóknum frá fleiri Evrópulöndum, að því er fram kemur í The Economist. Í Austurríki, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi og Svíþjóð séu innflytjendur frá Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Mið-Asíu og Afríkuhorninu hlutfallslega fleiri meðal grunaðra og sakfelldra en búast mætti við miðað við mannfjölda. Þetta eigi einkum við um kynferðisbrot.
Þar sem tekið hefur verið tillit til aldurs hefur munurinn minnkað, en ekki horfið. Aðferðir við rannsóknirnar eru þó mismunandi eftir löndum.
Gagnrýna framsetningu niðurstaðna
Myndritið sem fylgdi greiningunni hefur meðal annars sætt gagnrýni á samfélagsmiðlum.
Þar er notaður lógaritmískur kvarði, þar sem jöfn bil tákna sömu hlutfallslegu breytingu en ekki sömu tölulegu hækkun. Þannig er jafnt bil frá einum upp í tvo og frá tveimur upp í fjóra, enda tvöfaldast talan í báðum tilvikum. Gagnrýnendur telja að þessi framsetning geri sjöfaldan mun á tíðni sakfellinga minna áberandi en á línulegum kvarða.
Í pistli á vef The Critic frá 29. október fjallar Chris Bayliss um viðbrögðin. Hann gagnrýnir jafnframt að tímaritið leggi áherslu á að heildarfjöldi brotanna sé tiltölulega lítill, þrátt fyrir muninn á hópunum.
The Economist bendir hins vegar á að afganskir ríkisborgarar hafi verið sakfelldir fyrir 92 kynferðisbrot á árunum 2010 til 2012, samanborið við 102 brot á árunum 2022 til 2024. Brotum sem leiddu til sakfellinga hafi því fjölgað um tíu milli þessara tímabila, þótt fjöldi Afgana í landinu hafi um það bil þrefaldast.
Tímaritið telur því ekki tilefni til að tala um faraldur kynferðisbrota.
Afbrotatölur til umræðu hér á landi
Í Spursmálum á mbl.is á föstudag mættust þau Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur, eftir að hafa tekist á um innflytjendamál á samfélagsmiðlum.
Elliði hefur meðal annars kallað eftir því að stjórnvöld birti ítarlegri upplýsingar um afbrot eftir uppruna og dvalargrundvelli fólks. Jasmina hefur hins vegar lagt áherslu á að þótt munur mælist á afbrotatíðni milli hópa sé ekki þar með ljóst hvað valdi honum.
Í grein sem hún birti á Vísi 22. október fjallaði hún meðal annars um danskar afbrotatölur. Þar benti hún á að munurinn milli hópa hyrfi ekki að öllu leyti þótt tekið væri tillit til aldurs og félags- og efnahagslegrar stöðu. Það sannaði þó ekki að uppruni fólks væri orsök munarins.
Afbrotatölfræði eftir ríkisfangi vakti einnig deilur í febrúar, þegar dómsmálaráðuneytið leiðrétti svar við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fjölda ákærðra einstaklinga með erlent ríkisfang.
Samkvæmt leiðréttu svari ráðuneytisins voru 247 erlendir ríkisborgarar og 601 íslenskur ríkisborgari ákærðir fyrir brot gegn almennum hegningarlögum árið 2024. Erlendir ríkisborgarar voru því 29,1 prósent þeirra sem ákærðir voru fyrir slík brot.
Tölurnar sýna fjölda ákærðra, ekki sakfelldra. Þær ná auk þess til fleiri brota en kynferðisbrota og eru því ekki sambærilegar við bresku niðurstöðurnar.
Í kjölfarið tókust Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Diljá Mist á um hvernig túlka ætti upplýsingarnar.
Margrét benti á að aldur og kyn skiptu miklu máli þegar afbrotatíðni væri borin saman milli hópa. Þá þyrfti að hafa í huga að erlendir ferðamenn gætu einnig verið meðal ákærðra. Hún tók jafnframt fram að hún væri fylgjandi gagnsæi og birtingu afbrotatölfræði.
Diljá Mist lagði hins vegar áherslu á mikilvægi þess að skoða mun milli einstakra ríkisfanga. Hún spurði meðal annars hvers vegna fjölmennir innflytjendahópar frá Asíu og stærstu ferðamannahóparnir væru lítt áberandi í gögnunum.
Vísir fjallaði um orðaskiptin 24. febrúar.
Ríkisfangið segir ekki alla söguna
Migration Observatory bendir á að ýmsa fyrirvara þurfi að hafa við samanburð afbrotatalna eftir ríkisfangi.
Gögnin segja til að mynda ekki til um hvort viðkomandi hafi komið til Bretlands vegna atvinnu, náms eða í leit að alþjóðlegri vernd. Þá teljast innflytjendur sem fengið hafa breskan ríkisborgararétt til Breta í tölfræðinni, en erlendir ríkisborgarar sem aðeins voru í heimsókn geta einnig verið taldir með.
Sami einstaklingur getur jafnframt komið oftar en einu sinni fyrir í gögnum um sakfellingar.
Í yfirliti sínu um innflytjendur og afbrot bendir Migration Observatory jafnframt á að aðeins lítill hluti afbrota leiði til sakfellingar. Tíðni sakfellinga gefi því ekki ein og sér fulla mynd af raunverulegri afbrotatíðni ólíkra hópa.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/7/5/1070585.jpg)

