Ákærður fyrir vörslu barnaníðsefnis eftir komuna frá Íslandi

Ekki kemur fram í tilkynningunni hvers vegna hann hafði verið á Íslandi eða hversu lengi hann dvaldi hér á landi. mbl.is/​Hari

Þrítugur bandarískur karlmaður var handtekinn á alþjóðaflugvellinum í Portland í Oregon eftir að tollverðir fundu meint barnaníðsefni í síma hans.

Maðurinn var að koma með flugi frá Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá alríkissaksóknaraembættinu í Oregon, sem greindi frá því í dag að maðurinn, Alec Joseph Adams, hefði verið ákærður fyrir vörslu barnaníðsefnis.

Á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi

Við tollskoðun eftir lendingu í Portland 28. október kom í ljós að Adams var á skilorði vegna fyrri dóma fyrir að hafa lokkað til sín barn og framið kynferðisbrot gegn barni á netinu.

Við skoðun á síma hans fundu tollverðir myndefni sem grunur lék á að sýndi kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Rannsóknarlögreglumenn fundu í kjölfarið fleiri myndir og myndskeið í falinni möppu í símanum.

Adams á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi verði hann fundinn sekur. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvers vegna hann hafði verið á Íslandi eða hversu lengi hann dvaldi hér á landi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅