Einkaaðilar ættu að útbúa námsgögnin

Kennslustund í Ísaksskóla. Öðrum Norðurlandaþjóðum hefur lánast betur að virkja markaðinn við útgáfu námsgagna en Íslendingum. mbl.is/Eggert

Ráðast þarf í breytingar á útgáfu og fjármögnun námsgagna fyrir grunnskólastigið. Brýnt er að hleypa einkaaðilum betur að námsgagnaútgáfu en Ísland er eitt Norðurlanda með miðstýrða útgáfu námsgagna.

Þetta kemur fram í nýrri greiningu sem Viðskiptaráð birtir í dag.

Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs, segir margt benda til þess að það fyrirkomulag sem er í gildi í dag þjóni ekki nógu vel þörfum nemenda og kennara.

„Það má m.a. sjá vandann á því að í PISA-könnuninni 2025 sögðu 25% skólastjórnenda að skortur á námsgögnum hamlaði kennslu að einhverju leyti. Til samanburðar var hlutfallið 17% þegar spurt var 2022,“ segir Birta. „Vandinn birtist líka í því að sjö af hverjum tíu kennurum segjast oft eða mjög oft nota námsefni sem búið var til innan veggja skólans en auðvitað er ekki skilvirk lausn á vandanum ef kennarar í skólum um allt land sjá sig knúna til að útbúa nýtt námsefni frá grunni vegna þess að þau námsgögn sem þeim standa til boða eru ekki nógu góð.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅