Þetta hefði getað komið fyrir mig
Raphinha segir að andlát Jesús de Miguel hafi gert honum erfitt fyrir að spila fótbolta í 3:0-sigri Barcelona á Aston Villa í Meistaradeildinni í vikunni.
„Eftir að ég sá fréttirnar leið mér ekki vel. Þegar öllu er á botninn hvolft var hann knattspyrnumaður eins og við.
Þetta hefði getað komið fyrir hvert okkar sem er. Þetta hefði getað komið fyrir mig,“ sagði hann við Movistar eftir leikinn.
Brasilíumaðurinn skoraði tvö mörk en kaus frekar að votta fjölskyldu framherja Tenerife stuðning sinn en að ræða úrslitin.
„Það var mjög erfitt að fara út á völlinn og spila leik við þessar aðstæður. Hann var leikmaður á sama aldri og ég.
Kannski er það ástæðan fyrir því að þetta hafði svona mikil áhrif á mig.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗