Tjáði sig í fyrsta skipti um andlátið

Jesús de Miguel var jarðaður í dag.

Jesús de Miguel var jarðaður í dag. AFP/Cesar Manso

Jesús Owono, markvörður Andorra, segist hafa gengið í gegnum erfiðustu daga lífs síns eftir áreksturinn sem leiddi til andláts Jesús de Miguel, knattspyrnumanns Tenerife.

„Þetta hafa verið erfiðustu dagar lífs míns. Ég á erfitt með að finna orðin og mér reynist mjög erfitt að sætta mig við nokkuð af því sem hefur gerst.

Ég finn fyrir gríðarlegri sorg yfir missi Jesús,“ sagði hann í yfirlýsingu sem Andorra birti.

„Ég veit að það verða mörg mál sem þarf að taka á og ég mun mæta því sem koma skal og gera eins vel og ég get.

En núna, satt best að segja, get ég ekki hugsað um neitt annað en Jesús og sorgina sem við göngum í gegnum.“

De Miguel, sem var þrítugur, lést á sjúkrahúsi á þriðjudag eftir áreksturinn á mánudag. Þetta voru fyrstu opinberu ummæli Owono um atvikið.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅