„Auðvitað eru smá tilfinningar“
„Við vorum of linir í vörninni allan leikinn,“ sagði Frank Aron Booker, leikmaður Álftanes, eftir að fyrsta tap liðsins í úrvalsdeild karla í körfubolta í vetur kom gegn KR í 5. umferð deildarinnar.
„Við náum góðum spretti í öðrum leikhluta og svo allan þriðja, komumst inn í leikinn og náum forystu. Síðan missum við þetta aftur frá okkur um miðjan fjórða leikhluta,“ sagði Frank Aron spurður nánar út í hvað var þess valdandi að Álftanes tapaði afar jöfnum og spennandi leik í kvöld.
Munu horfa aftur á leikinn og sjá hvað fór úrskeiðis
Þið eruð að elta allan fyrri hálfleikinn en komið mjög fastir fyrir í seinni hálfleiknum, jafnið og náið forskoti. Á þessum tímapunkti bjóst maður við því að þið væruð að fara að taka yfir leikinn en það tókst ekki. Hvað gerðist?
„Þeir fengu góð skot og lay-up á meðan við vorum of hægir sem er ólíkt okkur þegar við ráðumst að körfunni.
Við munum horfa á þennan leik aftur á myndbandi og þá mun sjást augljóslega hvað fór úrskeiðis hjá okkur í kvöld.
Það er bara byrjun nóvember og nóg eftir. Við þurftum á þessu sparki að halda og það er kannski bara að koma á frábærum tímapunkti fyrir okkur.“
Lið Álftanes of reynslumikið til að láta umræðuna hafa áhrif á sig
Umræðan hefur verið á þá leið að þið séuð með valinn mann í hverju rúmi og með langbesta liðið sem eigi að vinna alla leiki vetrarins. Telur þú að þessi umræða hafi eitthvað truflað liðið?
„Nei, alls ekki. Við erum með það reynslumikla leikmenn sem hafa spilað stór hlutverk í þessari deild að það truflar okkur ekki að vera hluti af svona umræðu.
Planið var að mæta af fullum krafti í þennan leik og vinna. Það tókst ekki og það er bara áfram gakk. Það er 5. nóvember í dag og við vorum að spila 5. umferðina og að mér vitandi hefur enginn orðið deildarmeistari á þessum tímapunkti deildarinnar.“
Næsti leikur hjá ykkur er á móti þínu gamla liði, Val. Verður það skrýtið fyrir þig að mæta þeim?
„Það verður stemmning og skemmtilegt. Auðvitað eru smá tilfinningar í þessu þar sem ég var í Val í sex ár eða frá því ég kom til Íslands. En auðvitað ætla ég bara að fókusa á hvað ég get gert fyrir mitt lið sem er Álftanes,“ sagði Frank Aron Booker í samtali við mbl.is.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

