55 fm af smartheitum á „Tenerife“ Íslands

Þetta rými lítur ekki út fyrir að vera í 55 fermetra íbúð. Hér er búið að hugsa fyrir öllu. Af fasteignavef mbl.is

Í Fossvoginum í Reykjavík er að finna afar huggulega fyrstu eign á sölu. Íbúðin er aðeins 55 fermetrar en þrátt fyrir það íbúðin rúmgóð. Ásett verð 59,9 milljónir. 

Íbúðin er vel skipulögð með einu svefnherbergi. Inni á litlu baðherbergi er búið að koma fyrir bæði sturtu og þvottaaðstöðu. Eldhúsið er í opnu rými með nýlegri innréttingu. Eldhúsrýmið er hannað þannig að allar hirslur nýtast sem best en taka ekki of mikið frá stofunni. 

Íbúðin er staðsett á jarðhæð í fjölbýlishúsi sem var reist árið 1972. Garðurinn vísar í suður og við eignina er búið að byggja stóran pall og mála í ljósum lit sem bætir töluvert við fermetratöluna. Sumir vilja meina að Fossvogurinn sé eins og Tenerife og það má því gera ráð fyrir því að nota pallinn töluvert. 

Af fasteignavef mbl.is: Markland 6

Það er fallegt útsýni úr íbúðinni þrátt fyrir að hún sé á jarðhæð. Af fasteignavef mbl.is

Pallurinn stækkar íbúðina.

Pallurinn stækkar íbúðina. Af fasteignavef mbl.is

Svefnherbergið er notalegt og rúmgott.

Svefnherbergið er notalegt og rúmgott. Af fasteignavef mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅