Trump gerir skrifstofu sína að þjóðarminnismerki
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun sem gerir sporöskjulaga skrifstofuna í Hvíta húsinu að þjóðarminnismerki (e. national monument).
Að sögn Trumps tryggir tilskipunin að enginn geti nokkurn tímann eyðilagt þetta „stórkostlega rými“. Hún kemur jafnframt í veg fyrir að síðari forsetar ráðist í framkvæmdir á henni.
Veto-derhúfa á skrifborðinu
„Það verður hvorki hægt að rífa það, eyðileggja né hrófla við því á nokkurn hátt. Þetta kallast í raun þjóðarminnismerki,“ sagði Trump við fréttamenn.
Við undirritun tilskipunarinnar má sjá derhúfu á skrifborði forsetans með áletruninni „Veto“ eða „neitunarvald“.
Trump hefur hótað því að beita neitunarvaldi óspart þegar meirihluti demókrata tekur sæti á þingi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
