Hver þarf hnífapör þegar þetta er í matinn?

Safarík nautasteik, fersk mangósalsa og mjúk lárperusósa fylla tortillurnar í þessari uppskrift Evu Laufeyjar Kjaran. Ljósmynd/Aðsend

Þunnar sneiðar af safaríkri nautasteik, sætt mangó, saltur fetaostur og silkimjúk lárperusósa fylla hér mjúkar tortillur. Kjötið fær bragð af hvítlauk, chili og steinselju áður en það fer á heita grillpönnuna og ferskur límónusafi setur punktinn yfir i-ið í litríku salsanu. Berið kræsingarnar fram í skálum á miðju borðinu svo allir geti sett saman sína uppáhaldstortillu.

Uppskriftin er frá Evu Laufeyju Kjaran.

Steikartaco

Látið steikina hvíla áður en hún er skorin í þunnar sneiðar og borin fram með mangósalsa, fetaosti og lárperusósu. Ljósmynd/Aðsend

  • 400 g nautasteik, t.d. entrecôte
  • Ólífuolía
  • 1 msk. steinselja
  • ¼ rauður chilipipar
  • 1 hvítlauksrif
  • Salt og pipar

Aðferð

  1. Saxið steinselju, chili og hvítlauk. Blandið saman við ólífuolíu og nuddið kjötið upp úr marineringunni. Kryddið með salti og pipar.
  2. Hitið grillpönnu vel og steikið kjötið í um það bil fimm til sex mínútur á hvorri hlið. Steikingartíminn fer eftir þykkt kjötsins og því hversu mikið þið viljið hafa það steikt.
  3. Látið kjötið hvíla í að minnsta kosti sex mínútur. Undirbúið meðlætið á meðan.
  4. Skerið kjötið í þunnar sneiðar og berið fram með tortillum, hreinum fetaosti, mangósalsa og lárperusósu.

Mangósalsa

  • 1 mangó
  • 10 kirsuberjatómatar
  • ½ laukur
  • 1 msk. smátt söxuð steinselja
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Safi úr ½ límónu

Aðferð

  1. Skerið mangó, tómata og lauk smátt og blandið saman í skál ásamt steinseljunni.
  2. Hellið örlítilli ólífuolíu saman við og smakkið til með salti og pipar.
  3. Kreistið límónusafann yfir rétt áður en salsað er borið fram.

Lárperusósa

  • 4 dl grísk jógúrt
  • 1 lárpera
  • 1 msk. smátt saxaður kóríander
  • 1 tsk. hunang
  • Safi úr ½ límónu
  • Salt og pipar

Aðferð

  1. Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið þar til sósan er orðin silkimjúk.
  2. Berið strax fram.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅