Skilaði ís sem reyndist vera kjöt

Ýmislegt skondið hefur komið upp á í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði á þeim 53 árum sem fjölskylda Gísla Sigurbergssonar hefur rekið verslunina.

Gísli, sem er framkvæmdastjóri og einn eigenda Fjarðarkaupa, rifjar upp sérstaklega eftirminnilegt atvik í viðtali við Dagmál þar sem viðskiptavinur skilaði því sem hann taldi vera skafís í dós.

Viðskiptavininum þótti eitthvað athugavert við ísinn og leitaði því til Gísla, sem ákvað að endurgreiða vöruna án frekari málalenginga.

En þegar innihald dósarinnar fór að þiðna kom nokkuð óvænt í ljós.

„Þá hefur þetta sennilega verið einhvers konar kássa eða eitthvað, nautahakk eitthvað sem hefur verið sett í og náttúrulega farið í hélu að ofan,“ segir Gísli.

„Þannig að það var þetta bara, þú veist, nautahakk sko.“

Vildi skila tveggja ára gamalli pönnu

Gísli segir ýmislegt hafa komið upp í samskiptum við viðskiptavini í gegnum tíðina. Nýlega hafi til að mynda kona viljað skila tveggja ára gamalli pönnukökupönnu sem hún sagði aldrei hafa virkað, þótt greinilegt væri að hún hefði verið töluvert notuð.

Fjarðarkaup eru nú að ganga í gegnum mikil tímamót því fjölskyldan hefur samið um sölu verslunarrekstrarins til Samkaupa eftir meira en hálfrar aldar rekstur.

Í meðfylgjandi myndskeiði segir Gísli söguna af ísnum sem reyndist vera kjöt.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅