Af hverju eru tískuhúsin svona upptekin af mat?
Coach fagnaði 85 ára afmæli með risavaxinni köku. Hjá Dior varð valhneta fyrirmynd að tösku í vor- og sumarlínu merkisins fyrir 2027. Samsett mynd/Skjáskot Instagram
Tískuhús nota mat í auknum mæli við kynningu á vörum sínum. Pylsur á tískuviðburðum, samstarf við sælgætisframleiðendur og töskur í líki matvæla eru meðal dæma sem blaðamaðurinn Kristen Bateman tók nýverið fyrir í umfjöllun sinni í ELLE.
Bateman segir tengsl matar og tísku eiga sér langa sögu en telur þau nú áberandi á fleiri sviðum en áður. Áhrifin ná frá veitingum á viðburðum til vöruhönnunar og heita á litum.
Þegar Coach fagnaði nýlega 85 ára afmæli sínu með tískusýningu voru stórir rækjuturnar og risavaxin afmæliskaka meðal veitinganna. Celine bauð upp á pylsur á viðburði í tengslum við tískuvikuna í New York.
Hjá Rachel Comey varð samstarf við sælgætisframleiðanda hins vegar hluti af sjálfri fatalínunni.
Sérhannaðar töskur fyrir sælgæti
Við sýningu á vor- og sumarlínu Rachel Comey fyrir 2027 báru fyrirsætur silfurlitar Coco-töskur sem tengjast samstarfi merkisins við sælgætisframleiðandann Unreal. Töskurnar voru útbúnar vösum og hitavörn fyrir sælgætið.
Önnur merki nota matvæli sem fyrirmynd að lögun fylgihluta. Dior sýndi tösku í líki valhnetu í vor- og sumarlínu sinni fyrir 2027. Hjá J.W. Anderson hefur blómkál og gulrætur verið fyrirmynd að töskuskrauti.
Bateman bendir jafnframt á að Judith Leiber hafi um áratugaskeið framleitt kristalskreyttar töskur í líki matvæla. Tengingin sé því ekki ný, þótt umfang hennar veki nú athygli.
Matarheitin eiga að miðla fleiru en lit
Jennifer Creevy, yfirmaður matar- og drykkjarsviðs hjá straumagreiningarfyrirtækinu WGSN, segir í samtali við ELLE að matur skipi sífellt stærri sess í lífsstíl neytenda. Samhliða því þróist tengsl matar við tísku, innanhússhönnun og húsbúnað.
Hún segir matarheiti hafa aðra skírskotun en hefðbundin litaheiti. Smjör vísi til dæmis bæði til gula litarins og hugmynda um hlýju, mýkt og notalegheit.
Smjörgulir og berjarauðir tónar eru meðal dæma sem ELLE nefnir. Sambærileg notkun matarheita sést í fegurðariðnaðinum, þar sem espressó er notað til að lýsa hárlitum og chai latte lit á naglalakki.
Að mati Creevy er matur þannig í auknum mæli orðinn sameiginlegt myndmál ólíkra greina hönnunar. Samstarfið felst því bæði í áþreifanlegum vörum, eins og töskum Rachel Comey og Unreal, og orðavali sem á að hafa áhrif á hvernig neytendur skynja þær.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗