Neitaði að setja ananas á pítsu og missti starfið

Pítsa með skinku og ananas var ekki að skapi ítalska kokksins Davide Tamburella, sem taldi áleggið móðgun við menningu sína. Rimsha Noor/Unsplash

Ítalskur matreiðslumaður sem var sagt upp störfum á veitingastað í Ástralíu hafði ítrekað neitað að setja ananas á pítsur. Hann taldi áleggið móðgun við menningu sína. Tilraun hans til að fá uppsögnina tekna fyrir hjá áströlsku vinnumálanefndinni Fair Work Commission hefur nú verið hafnað þar sem umsókn hans barst of seint. The Guardian greinir frá málinu.

Davide Tamburella var yfirkokkur á ítalska veitingastaðnum La Costa í Brisbane. Honum var sagt upp 20. maí, tveimur vikum eftir fund með yfirmanni sínum, Elliot Ingram, um atriði sem vörðuðu frammistöðu hans í starfi. Þar á meðal var synjun kokksins um að setja ananas á pítsur.

La Costa lagði ríka áherslu á ítalska ímynd sína og auglýsti klassíska ítalska rétti í umhverfi sem ætti að minna á ítölsku Rívíeruna. Á vefsíðu staðarins var gestum lofað að þeim myndi fljótt líða eins og þeir væru komnir frá Brisbane til Ítalíu.

Neitaði í þriðja sinn

Ingram lýsti því fyrir nefndinni að stór hópur hefði komið á staðinn og ætlað að verja meira en 15 þúsund áströlskum dölum í veisluna, jafnvirði um 1,28 milljóna íslenskra króna miðað við gengi Seðlabanka Íslands 4. nóvember. Sá sem greiddi reikninginn hefði óskað eftir pítsum með skinku og ananas.

Tamburella viðurkenndi að þetta hefði verið í þriðja sinn sem hann neitaði að verða við slíkum fyrirmælum. Hann hefði þess í stað beðið Ingram að kynna sér hversu mikilvægt Ítölum þætti að setja ekki ananas á pítsu.

Ingram sagðist sjálfur ekki endilega velja slíka pítsu. Reynslan af veitingarekstri hefði þó kennt honum að velja sér baráttumál. Pítsur með skinku og ananas hefðu auk þess áður verið á barnamatseðli staðarins.

Málið barst of seint

Tamburella hélt því fram að uppsögnin hefði brotið gegn vinnulöggjöf og tengdist að hluta vinnuslysi þar sem hann handarbrotnaði.

Nefndin tók ekki efnislega afstöðu til þess hvort uppsögnin hefði verið lögmæt. Umsókn hans var hafnað vegna þess að hún barst eftir tilskilinn frest og aðstæður voru ekki taldar réttlæta undanþágu.

Starfsmissirinn hafði einnig áhrif á umsókn Tamburella um varanlegt dvalarleyfi, sem byggðist á stuðningi atvinnurekandans. Hann þurfti því að hefja það ferli að nýju.

La Costa lokaði í júlí þegar leigusamningur staðarins rann út. Tamburella starfar nú á öðrum ítölskum veitingastað. Samkvæmt The Guardian er ananas ekki á matseðlinum þar.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅