Sítrónukaka með mjúku vanillukremi og ferskum berjum
Möndlu- og sítrónukaka með mjúku vanillurjómakremi og ferskum berjum gerir kaffistundina að lítilli veislu. Ljósmynd/Aðsend
Það þarf ekki flókinn bakstur til að gera kaffistundina að lítilli veislu. Þessi möndlu- og sítrónukaka er einföld í undirbúningi en falleg á borði, með mjúku vanillurjómakremi og ferskum berjum.
Sítrónan gefur kökunni ferskleika, möndlurnar mildan keim og berin setja litríkan svip á hana. Kakan er vegan, með jógúrt og rjóma úr jurtaríkinu, og tilvalin þegar þig langar að bjóða upp á eitthvað létt og fallegt með kaffinu.
Kökuna má finna á uppskriftavefnum Gulur, rauður, grænn og salt.
Möndlu- og sítrónukaka með vanillurjómakremi og ferskum berjum
Sítróna og möndlur gefa kökunni mildan og ferskan keim en litríku berin setja punktinn yfir i-ið. Ljósmynd/Aðsend
Kökubotn
- 240 ml vegan jógúrt, t.d. hrein frá Oatly
- Börkur og safi úr 1 sítrónu
- ½ tsk. möndludropar
- ½ tsk. sítrónudropar
- 80 g jurtaolía
- 220 g sykur
- 80 g möndlumjöl
- 225 g hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk. lyftiduft
- Salt á hnífsoddi
- 60 ml haframjólk, t.d. Oatly Kaffe
Vanillurjómakrem
- 1 peli Oatly Visp
- 3 msk. flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
- ½ tsk. sítrónusafi
- Salt á hnífsoddi
Til skreytingar
- Jarðarber, hindber, bláber og rifsber eftir smekk
Aðferð
- Hitið ofninn í 170 °C með blæstri.
- Blandið þurrefnunum saman í meðalstórri skál. Blandið blautefnunum saman í annarri skál og hrærið með písk.
- Hellið blautefnunum saman við þurrefnin og hrærið með sleif.
- Smyrjið 20 cm kökuform og setjið bökunarpappír í botninn. Smyrjið deiginu í formið og bakið í 35–40 mínútur. Fylgist vel með kökunni eftir um 30 mínútur þar sem ofnar geta verið misjafnir.
- Látið kökubotninn kólna.
- Setjið öll hráefnin í vanillurjómakremið í skál og stífþeytið.
- Smyrjið kreminu á kalda kökuna og skreytið með ferskum berjum eftir smekk.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/89/1688973.jpg)
