„Pabbi bauð honum að flytja inn eftir tvær vikur“

Paula Izabela og Ismael Þór Ólafsson gengu í hjónaband á hrekkjavökunni, sjö árum eftir að þau urðu par í hrekkjavökupartíi. Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Ein spurning um kött á annasamri laugardagsvakt á Domino’s varð upphafið að ástarsögu Paulu Izabelu og Ismaels Þórs Ólafssonar. Tveimur vikum síðar bauð faðir hennar Ismael að flytja inn.

Nú eiga þau tvö börn, fjóra ketti og einn hund og gengu í hjónaband á hrekkjavökunni. Í brúðkaupinu voru beinagrind á dansgólfinu, heimagerður kokteill og auðvitað pítsur í miðnætursnarl.

„Ismael var verslunarstjóri og ég var bakari. Við vorum saman á vakt einn laugardag í miðju megavikuannríkinu þegar ég spurði hann spurninga um kött. Þannig kviknaði eitthvað hjá okkur. Við töluðum saman klukkutímum saman það sem eftir var vaktarinnar og hættum aldrei eftir það,“ segir Paula.

Pítsan fékk sinn sess á brúðkaupsdaginn enda kynntust hjónin við störf á Domino’s og starfa þar bæði enn. Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Ismael hóf störf hjá Domino’s árið 2014 og Paula árið 2017. Þau höfðu því þekkst í tvö ár þegar samræðurnar tóku þessa óvæntu stefnu árið 2019. Faðir hennar sá að minnsta kosti enga ástæðu til að fara sér hægt.

„Tveimur vikum seinna spurði pabbi hvort Ismael vildi ekki flytja inn til okkar. Pabba fannst það ekkert of snemmt. Við værum nú þegar búin að þekkjast í tvö ár!“

Margrét Erla Maack frá Siðmennt gaf hjónin saman í Aurora Basecamp. Boðið var upp á skot í athöfninni til að hefja veisluhöldin með stæl. Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Ástin kom af sjálfu sér

Í dag búa þau í húsi á Suðurnesjum með börnunum sínum tveimur og dýrunum fimm. Bæði starfa enn hjá fyrirtækinu þar sem þau kynntust, Ismael sem svæðisstjóri og Paula sem fræðslustjóri.

En mæla þau með því að fólk finni ástina á vinnustaðnum?

„Ekkert endilega. Við trúum bæði að maður eigi ekkert að vera að leita að ástinni. Í okkar tilfelli kom hún bara af sjálfu sér. Við kynntumst í vinnunni og restin gerðist þegar við vorum búin að stimpla okkur út.“

Þau urðu formlega par í hrekkjavökupartíi heima hjá Paulu árið 2019. Þegar kom að því að velja brúðkaupsdag varð dagsetningin því fyrir valinu á ný.

Brúðkaupsveislan fór fram í Arnarfelli. Hjónin sáu sjálf um stærstan hluta undirbúningsins með hjálp fjölskyldu og vina. Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Skot í athöfninni

Brúðkaupið hafði verið í undirbúningi í tvö og hálft ár og þau sáu sjálf um stærstan hluta skipulagningarinnar með aðstoð fjölskyldu og vina.

„Brúðkaupið var algjör draumur. Ég myndi segja að við hefðum verið með frekar óhefðbundið brúðkaup,“ segir Paula.

Gestir flugu til Íslands frá Kanada, Bandaríkjunum, Englandi, Póllandi, Svíþjóð og Dúbaí til að fagna með þeim.

„Ismael er hálfur Filippseyingur og ég er pólsk, svo þetta var mjög blandaður en geggjaður hópur af fólki.“

Athöfnin fór fram í Aurora Basecamp þar sem Margrét Erla Maack frá Siðmennt gaf þau saman.

„Hún gerði athöfnina ótrúlega skemmtilega og eftirminnilega fyrir alla. Svo var boðið upp á skot í athöfninni til að byrja veisluna með stæl.“

Veislan var haldin í Arnarfelli og Paula ber bæði salnum og starfsfólkinu þar vel söguna. Ási Guðna sá um veislustjórnina og Atli Már um tónlistina.

„Það var mjög gott að vinna með Ása. Hann nefnir sjálfur hvað brúðkaupið hafi verið óhefðbundið. Atli Már hélt svo uppi stuðinu frá byrjun til enda.“

Gestir komu meðal annars frá Kanada, Bandaríkjunum, Englandi, Póllandi, Svíþjóð og Dúbaí til að fagna með hjónunum. Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Beinagrind á dansgólfinu og ástarbit í glasi

Hrekkjavakan fékk sinn sess í veislunni. Gestir gátu skreytt sig með tímabundnum húðflúrum, nælt sér í ljómaprik og brugðið sér í myndaklefa. Leikir voru á dagskránni og beinagrind var á dansgólfinu.

Barinn var opinn alla nóttina og þar var meðal annars hægt að fá kokteil sem brúðhjónin höfðu sjálf þróað fyrir tilefnið.

„Við vorum með okkar eigin hrekkjavökukokteil sem við bjuggum til frá grunni og heitir Love Bite.“

Maturinn fékk líka persónulegan blæ. Þegar leið á nóttina biðu gestanna pítsur frá staðnum þar sem saga hjónanna hófst.

„Það var auðvitað Domino’s-pítsa í miðnætursnarli og við þurftum að fara í myndatöku með Domino’s-pítsu!“

„Við kynntumst í vinnunni og restin gerðist þegar við vorum búin að stimpla okkur út.“ Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Bakaði kvöldið fyrir brúðkaupið

Hefðbundin brúðarterta var ekki á borðum. Í staðinn buðu þau upp á kleinuhringi, smákökur, karamellupopp og Amarula með þeyttum rjóma og graskerskryddi.

„Við vorum ekki með hefðbundna brúðartertu, því auðvitað þurfti allt að vera öðruvísi. Við buðum upp á Cinnamon Crunch-kleinuhringi og heimabakaðar smákökur sem ég var að baka á föstudagskvöldinu fyrir brúðkaupið.“

Þótt dansinum lyki var brúðkaupsfögnuðurinn ekki á enda. Á sunnudeginum tóku þau á móti sínum nánustu heima og héldu gleðinni áfram fram á kvöld.

„Við vorum með annað partí með okkar nánustu, hlaðborð og drykki heima hjá okkur. Í Póllandi er hefð fyrir því að brúðkaup standi yfir í fleiri en einn dag.“

Í dag búa þau í húsi á Suðurnesjum með börnunum sínum tveimur og dýrunum fimm. Bæði starfa enn hjá fyrirtækinu þar sem þau kynntust, Ismael sem svæðisstjóri og Paula sem fræðslustjóri. Ljósmynd/B.DÓTTIR Photography/ Birta Sveinbjörnsdóttir

Vill skipuleggja fleiri veislur

Undirbúningurinn hefur jafnframt vakið áhuga Paulu á að skipuleggja viðburði fyrir aðra. Hún hefur lengi haft gaman af því að taka á móti fólki og huga að smáatriðunum, en við brúðkaupsundirbúninginn sá hún nýja möguleika.

„Ég held að þessi tvö og hálft ár sem ég hef verið að skipuleggja brúðkaupið hafi kveikt hjá mér mikinn áhuga á að skipuleggja og skreyta. Viðburðaskipulagning er eitthvað sem ég sé mig gera í náinni framtíð. Ég hef alltaf verið sú sem tekur á móti fólki og haft auga fyrir öllum smáatriðunum.“

Eftirminnilegast er þó fólkið sem tók þátt í deginum með þeim.

„Við viljum þakka öllum sem tóku þátt í skipulagningunni og þeim sem fögnuðu með okkur á þessum magnaða degi.“

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅