Fundaði með Árbæingum
Sigurður Ragnar Eyjólfsson fundaði með knattspyrnudeild Fylkis í vikunni en Árbæingar eru í leit að nýjum þjálfara eftir að Heimir Guðjónsson hætti með liðið.
Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Sigurður Ragnar, sem er 52 ára gamall, gerði NSÍ frá Runavík að Færeyjarmeisturum á dögunum.
Sigurður Ragnar er með samningstilboð frá NSÍ en óvíst er hvort hann verði áfram við stjórnvölinn í Færeyjum.
Ólafur Ingi Skúlason hefur einnig verið orðaður við þjálfarastöðuna í Árbænum en hann lét af störfum hjá Breiðabliki eftir nýliðið tímabil.
Þá hafa þeir Davið Smári Lamude, Aron Baldvin Þórðarson og Borja Martin einnig verið orðaðir við þjálfarastöðuna í Árbænum að því er fram kemur í frétt fótbolta.net.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗