Snýr ekki aftur í Árbæinn
Ólafur Ingi Skúlason mun ekki taka við þjálfun uppeldisfélags síns Fylkis.
Þetta tilkynnti Ragnar Páll Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar Fylkis, í samtali við fótbolta.net í dag.
Ólafur Ingi, sem er 43 ára gamall, hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá uppeldisfélagi sínu en hann lét af störfum hjá Breiðabliki eftir nýliðið keppnistímabil.
Fótbolti.net greindi frá því í dag að Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefði fundað með Árbæingum um að taka við þjálfun liðsins í vikunni.
Þeir Davíð Smári Lamude, Aron Baldvin Þórðarson og Borja Martin hafa einnig verið orðaðir við starfið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗