Fyrirliðinn áfram hjá Barcelona

Raphinha.

Raphinha. AFP/Manaure Quintero

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Raphinha hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Raphinha, sem er 29 ára gamall, skrifaði undir fjögurra ára samning sem gildir til sumarsins 2030.

Hann gekk til liðs við Barcelona frá Leeds sumarið 2022 fyrir 50 milljónir punda og hefur verið í lykilhlutverki síðan.

Sóknarmaðurinn hefur skorað 15 mörk og lagt upp önnur þrjú í 10 leikjum í spænsku 1. deildinni á tímabilinu og þá hefur hann skoraði fjögur mörk í þremur leikjum í Meistaradeildinni.

Alls á hann að baki 190 leiki fyrir Barcelona þar sem hann hefur skorað 94 mörk og lagt upp önnur 62.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅