27 ára leggur skóna á hilluna

Sindri Þór Ingimarsson.

Sindri Þór Ingimarsson. mbl.is/Anton Brink

Knattspyrnumaðurinn Sindri Þór Ingimarsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.

Þetta tilkynnti félag hans Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum en Sindri Þór, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við Stjörnuna frá Augnabliki árið 2022.

Hann lék 18 leiki með Stjörnunni í Bestu deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark en hann er uppalinn hjá Breiðabliki.

„Hann hefur verið mikilvægur hluti af okkar liði og skilur eftir sig góðar minningar innan félagsins,“ segir meðal annars í tilkynningu Garðbæinga.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅