Trump gerir skrifstofu sína að þjóðarminnismerki

Trump sést hér sitjandi við Resolute-skrifborðið í Sporöskjulaga skrifstofunni í Hvíta húsinu. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun sem gerir sporöskjulaga skrifstofuna í Hvíta húsinu að þjóðarminnismerki (e. national monument).

Að sögn Trumps tryggir tilskipunin að enginn geti nokkurn tímann eyðilagt þetta „stórkostlega rými“. Hún kemur jafnframt í veg fyrir að síðari forsetar ráðist í framkvæmdir á henni.

Neitunarvald.

Neitunarvald. AFP

Veto-derhúfa á skrifborðinu

„Það verður hvorki hægt að rífa það, eyðileggja né hrófla við því á nokkurn hátt. Þetta kallast í raun þjóðarminnismerki,“ sagði Trump við fréttamenn.

Við undirritun tilskipunarinnar má sjá derhúfu á skrifborði forsetans með áletruninni „Veto“ eða „neitunarvald“.

Trump hefur hótað því að beita neitunarvaldi óspart þegar meirihluti demókrata tekur sæti á þingi.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅