Arnar: Maður er virkilega hrærður
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, fylgist vel með gangi mála hjá sínu gamla félagi Víkingi en hann stýrði liðinu með góðum árangri áður en hann var ráðinn landsliðsþjálfari.
„Ekki bara ánægður, heldur hrikalega stoltur af klúbbnum og líka hvað þeir eru lítið að monta sig af sínum eigin afrekum.
Íslenska deildin í sumar var virkilega skemmtileg en Víkingar báru höfuð og herðar yfir önnur lið,“ sagði Arnar í samtali við mbl.is um góðan árangur Víkinga eftir brottför hans úr Fossvogi.
Ingvar Jónsson byrjaði tímabilið sem aðalmarkvörður Víkinga en hefur verið í veikindaleyfi undanfarna mánuði eftir að hann greindist með krabbamein. Víkingar hafa verið afar duglegir við að styðja við bakið á Ingvari.
„Það er svo yndislegt að fylgjast með því sem er að gerast í Víkinni og hvernig þeir tóku utan um Ingvar í hans veikindum og fjölskyldu hans. Maður er virkilega hrærður að fylgjast með þessu,“ sagði Arnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗