Opinber gjöld aldrei verið hærri

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, fylgist með erindi á Sjávarútvegsdeginum 2026. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Meðalarðsemi eigin fjár í fiskveiðum og vinnslu á árunum 2015 til 2024 er 13,7 prósent, að því er fram kom á Sjávarútvegsdeginum 2026 sem fram fór í gær. Að deginum standa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök atvinnulífsins og Deloitte.

Fiskveiðar og -vinnsla eru þar í fjórða sæti á eftir byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð með 22,4% hlutfall, farþegaflutningum á sjó og landi með 20,2% og tölvutengdri þjónustu með 14,7% hlutfall. Hlutfallið síðustu ár er svo enn lægra, eða 6,3 prósent árið 2024 og 9,9 prósent 2025.

Lovísa Finnbjörnsdóttir forstjóri Deloitte fór á fundinum yfir rekstur og fjárhagsstöðu sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja, en fyrirtækið hefur haldið úti gagnagrunni um þau mál í 25 ár.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅