Ný framkvæmdastjórn Ísland Duty Free
Liam Grundy, Helga Dís Jakobsdóttir, Anna Hildur W. Björnsdóttir og Heiðar Róbert Birnuson. Ljósmynd/Aðsend
Ný framkvæmdastjórn Ísland Duty Free hefur verið skipuð. Framkvæmdastjórinn Liam Grundy lætur af störfum næsta vor. Ekki hefur verið tilkynnt um nýjan framkvæmdastjóra, sem þó segir í tilkynningu að hafi þegar verið ráðinn.
Í tilkynningunni segir að starfsemi og skipulag Ísland Duty Free hafi í ár verið endurskipulögð í takt við ný gildi og vinnustaðamenningu sem stjórn kom sér saman um í samstarfi við starfsfólk.
Í samræmi við þá vinnu hefur stjórnin verið endurskipulögð í heild sinni. Hana skipa, auk nýja framkvæmdastjórans, þau Anna Hildur W. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs, Helga Dís Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs, og Heiðar Róbert Birnuson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.
Fjárfestu tugum milljóna evra
Markmiðið með breytingunum er að samræma skipulag betur við íslenskar aðstæður, skýra betur hlutverk og skilvirkni og einfalda boðleiðir. Nýja framkvæmdastjórnin starfar eftir þeim gildum og stefnu sem fyrirtækið setti sér í byrjun árs.
Þegar Heinemann Retail tók við rekstri fríhafnarverslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar var Liam Grundy ráðinn tímabundið í stöðu framkvæmdastjóra til að koma rekstrinum af stað og innleiða þær breytingar sem talin var þörf á, þar á meðal að endurnýja allar fríhafnarverslanirnar á Keflavíkurflugvelli.
Breytingarnar ásamt endurhönnun á verslununum eru þær viðamestu sem gerðar hafa verið á fríhafnarverslun í Keflavík frá upphafi og ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi á síðari árum. Þeim lauk í september á þessu ári og hefur Heinemann fjárfest tugum milljóna evra í verkefninu.
Heinemann leggur áherslu á að ráða til starfa fólk sem býr á Íslandi og þekkir íslenskan verslunarrekstur. Á bilinu 120 til 160 manns vinna hjá Ísland Duty Free, allt eftir álagi hverju sinni. Meirihluti þeirra sem störfuðu hjá gömlu fríhöfninni hélt störfum sínum og hafa sumir þeirra áratuga reynslu af verslun og þjónustu á Keflavíkurflugvelli.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗