Fyrsta hækkun stýrivaxta í þrjú ár

Höfuðstöðvar Englandsbanka í Lundúnum.

Höfuðstöðvar Englandsbanka í Lundúnum. AFP

Englandsbanki hefur hækkað stýrivexti úr 3,75% í 4%. Þetta er í fyrsta sinn sem bankinn hækkar vextina síðan í ágúst 2023.

Sky News greinir frá. Allir níu meðlimir peningastefnunefndar bankans greiddu atkvæði með hækkun, en einn vildi ganga lengra og greiddi atkvæði með því að hækka vextina í 4,25%.

Greinendur höfðu almennt búist við þessu skrefi í kjölfar verðbólguþrýstings frá því að Bandaríkin hófu stríð sitt við Íran.

„Þetta verður ekki síðasta stýrivaxtahækkunin ef stríðið í Íran heldur áfram,“ segir Andrew Bailey, seðlabankastjóri Englandsbanka.

Árleg verðbólga í Bretlandi jókst meira en búist hafði verið við í september og fór í 3,5 prósent – langt yfir tveggja prósenta markmiði bankans.

Englandsbanki sagði í dag að samkvæmt grunnspá hans myndi verðbólga í Bretlandi ná hámarki í 4,9 prósentum á öðrum ársfjórðungi næsta árs.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅