Sýn tapaði 70 milljónum
Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn tapaði 70 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Á sama tímabili í fyrra tapaði félagið 238 milljónum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársfjórðungsuppgjöri Sýnar.
Tekjur félagsins á fjórðungnum námu 5.529 milljónum króna og jukust um 5,7% frá sama tímabili í fyrra. Sé Sendafélagið undanskilið, en það varð hlutdeildarfélag Sýnar í árslok 2025, nam tekjuvöxturinn 8,6%.
Vöxturinn var borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins: tekjur af fjölmiðlun jukust um 19,4%, internettekjur um 9,2% og farsímatekjur um 9,0%.
Stöðugildum fækkað
Á sama tíma lækkaði heildarrekstrarkostnaður um 0,5% á milli ára, þrátt fyrir tekjuvöxt og kjarasamningsbundnar launahækkanir.
Launakostnaður lækkaði um 3,7% og stöðugildum fækkaði úr 397 í 360.
Þá lækkuðu leigugreiðslur um 8% og fjárfestingar í kerfum og rekstrarfjármunum drógust saman úr 258 milljónum króna í 149 milljónir.
EBITDAaL, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta að teknu tilliti til leigu, nam 1.161 milljón króna og hækkaði um 41,9% frá fyrra ári, þegar hann nam 818 milljónum.
EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum var jákvætt um 407 milljónir króna samanborið við neikvæða niðurstöðu upp á 181 milljón á sama tímabili í fyrra.
Gjaldfærður einskiptiskostnaður á fjórðungnum nam 101 milljón króna, meðal annars vegna lokunar sjónvarpsfrétta og söluferlis vef- og útvarpsmiðla. Á sama fjórðungi í fyrra höfðu einskiptisliðir lækkað tekjur um 90 milljónir og hækkað rekstrarkostnað tímabundið um 60 milljónir.
Að teknu tilliti til einskiptisliða beggja ára batnaði frjálst sjóðstreymi um 540 milljónir króna.
Hreinar vaxtaberandi skuldir félagsins án leiguskuldbindinga hafa lækkað um 1.104 milljónir króna frá áramótum og standa nú í 5.586 milljónum. Þar vegur þyngst 938 milljóna króna endurgreiðsla Sendafélagsins á láni á fyrsta ársfjórðungi.
Afkomuspá þrengd
Sýn hefur jafnframt þrengt bilið í afkomuspá sinni fyrir árið, þrátt fyrir gjaldfærslu einskiptisliða, lokun sjónvarpsfrétta og hraðari greiðslur vegna sýningarréttar á ensku úrvalsdeildinni.
Nú er gert ráð fyrir að EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum verði 0,9–1,1 milljarður króna, en áður hafði verið spáð 0,8–1,2 milljörðum. Áætlaðar fjárfestingar ársins lækka í 3,1–3,2 milljarða króna úr 3,2–3,4 milljörðum.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir í tilkynningu að uppgjörið sýni að breytingar undanfarinna ára séu að skila árangri.
„Tekjur halda áfram að vaxa, afkoman batnar verulega og sjóðstreymisgeta félagsins hefur styrkst.“
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗