Spá „flensufaraldri“ 19. nóvember

Þrettán ára bið er senn á enda. GTA VI kemur út 19. nóvember og sumir eru þegar búnir að skipuleggja frídag. AFP/Rie Kikuchi

Það gæti orðið óvenjulega mikið um „flensu“ á vinnustöðum landsins fimmtudaginn 19. nóvember, ef marka má það sem heyrist meðal tölvuleikjaáhugamanna. Þá kemur Grand Theft Auto VI, betur þekktur sem GTA VI, loksins út, þrettán árum eftir að síðasti leikurinn í aðalseríunni leit dagsins ljós.

Biðin hefur raunar orðið lengri en til stóð. Upphaflega átti leikurinn að koma út haustið 2025, en útgáfunni var fyrst frestað til 26. maí á þessu ári og síðan aftur til 19. nóvember. Rockstar Games, framleiðandi leiksins, hefur sagt að viðbótartíminn hafi verið nauðsynlegur til að fullvinna leikinn og tryggja að hann standist væntingar aðdáenda.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅