Við erum persónuleg heildsala
Ólafur Ó. Johnson segir að samruni ÓJ&K og ÍSAM hafi verið gæfuspor fyrir alla hlutaðeigandi. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heildsölufyrirtækið ÓJ&K-ÍSAM fagnar 120 ára afmæli á þessu ári. Á tímamótunum er gaman að rifja upp skemmtilegar sögur úr rekstrinum þó að forstjórinn Ólafur Ó. Johnson leggi í samtali við Morgunblaðið ekki síður áherslu á að tala um framtíðina og hvernig fyrirtækið mætir samkeppninni á markaðinum sem er síst að minnka.
„Við erum ein af þessum fjórum stóru heildsölum,“ segir Ólafur. „Veltan er 17 milljarðar á ári og starfsmenn 143.“
Forstjórinn segir að mottó fyrirtækisins sé að bjóða góða þjónustu. „Við erum persónuleg heildsala. Við vinnum mjög náið bæði með okkar birgjum og viðskiptavinum og hlerum stöðugt hvað vantar á markaðinn og hverju hann er að kalla eftir. Þessi viðskiptasambönd eru mjög mikilvæg fyrir okkur og við reynum að rækta þau vel.“
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗