„Ég er mikill föndrari og hef mjög gaman af því að baka“
Una hefur gaman af því að föndra, baka og velja gjafir handa fólkinu sínu og nýtur þess að pakka þeim inn á aðventunni. Ljósmynd/Kaja Sigvalda
Una Torfadóttir heldur fast í jólahefðirnar og nýtur samverustunda með fjölskyldunni. Á jólatónleikum sínum í Salnum vill hún skapa heimilislega stemningu og senda gesti heim með hlýju í hjartanu og bros á vör.
„Þetta verða notalegir tónleikar, afslappaðir en hátíðlegir, svolítið eins og bolli af heimagerðu heitu súkkulaði með piparkökuhjörtum úr búðinni,“ segir tónlistarkonan Una Torfadóttir þegar hún er beðin um að lýsa jólatónleikum sínum sem fara fram í Salnum í Kópavogi þann 18. desember.
Unu þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, enda hefur hún skipað sér sess meðal vinsælustu tónlistarkvenna landsins með hljómfagurri söngrödd sinni, fallegum lögum og einlægum lagaflutningi. Samhliða tónlistinni stundar Una nám í íslensku við Háskóla Íslands og leggur mikið upp úr samverustundum með fjölskyldu og vinum.
„Ég er fædd og uppalin í Vesturbænum og hef bara flutt einu sinni á ævinni, þegar við Hafsteinn Þráinsson, unnusti minn, hófum búskap á Hjarðarhaga, bara tveimur blokkum frá æskuheimili mínu og heimili foreldra minna. Ég er mjög heimakær og finnst fátt betra en að verja tíma með fjölskyldunni og vinum mínum.“
„Ljós í vetrarmyrkrinu“
Aðspurð um hvaða þýðingu jólin hafi fyrir hana segir Una:
„Það er svo mikilvægt fyrir okkur að hafa þetta ljós í vetrarmyrkrinu. Svo held ég líka að við þurfum á hefðum að halda til þess að fá einhverja tilfinningu fyrir framvindu tímans. Á hverjum jólum rifjast þau síðustu upp og árið milli jóla er sett í samhengi við þau sem á undan fóru. Ég er mikill föndrari og hef mjög gaman af því að baka og velja gjafir handa fólkinu mínu, svo aðventan hefur alltaf verið skemmtilegur tími í mínum bókum.“
Hvernig var jólahaldið heima hjá þér þegar þú varst yngri?
„Öll jól lífs míns hafa verið haldin á sama stað, heima hjá mömmu og pabba á Hjarðarhaga. Þá förum við stundum í jólamessu í Dómkirkjunni eða Neskirkju og borðum svo alla jafna rjúpu. Eftir matinn syngjum við oft jólalög áður en pakkarnir eru opnaðir. Þegar ég var lítil höfðum við möndlugrautinn í forrétt, sem er hefð úr föðurfjölskyldunni minni, en á síðustu árum höfum við borðað hann í hádeginu, aðallega til þess að tryggja að enginn verði banhungraður í jólastressinu á aðfangadag. Í stuttu máli má segja að jólin heima séu frekar gamaldags og hátíðleg, og mér finnst það alveg dásamlegt.“
Eins og fram hefur komið kann Una vel að meta jólahefðirnar og heldur fast í þær sem henni þykir vænst um.
„Ég tek enn á móti jólunum heima hjá foreldrum mínum svo ég fæ áfram að njóta góðs af jólahefðunum þeirra. Ég á mér alltaf gæðastund þar sem ég pakka inn gjöfum, bæði frá okkur Haffa og stundum líka gjöfunum frá mömmu og pabba til fjölskyldunnar. Ég sá alltaf um að pakka inn þegar ég var krakki og mér finnst það enn svo skemmtilegt. Stundum hefur þessi gæðastund dregist aðeins of langt inn á Þorláksmessunótt en ég er alltaf að verða betri í að gera þetta á skikkanlegum tíma.
Það verður spennandi að sjá hvernig jólin breytast þegar við Hafsteinn förum að halda okkar eigin jól.“
Jólin hjá Unu og fjölskyldu einkennast af rólegheitum og samveru.
„Í dag er ég sú yngsta á heimilinu þegar jólin ganga í garð. Stundum hafa eldri systkini mín verið með börnin sín með okkur á jólunum en núna eru þau farin að halda sín eigin jól. Um leið og klukkan slær sex leggst friður yfir heimilið og við gefum okkur góðan tíma í að borða saman, spjalla og syngja. Pakkarnir eru opnaðir í miklum rólegheitum og yfirleitt erum við að klára pakkastundina einhvern tímann eftir miðnætti.“
„Syngjum mikið saman á aðfangadag“
Tónlistin skipar stóran sess í jólahaldi fjölskyldu Unu og á aðfangadag er söngurinn órjúfanlegur hluti af deginum.
„Við fjölskyldan syngjum mikið saman á aðfangadag, aðallega jólasálma, og þá er sungið í röddum. Mamma og pabbi voru í Dómkórnum í mörg ár og kunna jólasálmana aftur á bak og áfram. Ég á margar góðar minningar úr jólamessum í Dómkirkjunni og mér þykir sérstaklega vænt um sálminn „Það aldin út er sprungið“. Á aðventunni hlusta ég á alls konar jólalög, bæði dægurlög og sálma, til þess að koma mér í jólaskap. Jólatónlist er náttúrlega ómissandi hluti af jólunum.“
Manstu eftir fyrstu jólatónleikunum sem þú fórst á?
„Ég man ekki hverjir voru þeir fyrstu en einu sinni fórum við fjölskyldan að sjá Eivöru á aðventunni, það var alveg stórkostlegt. Mig minnir að hún hafi sungið blöndu af sínum eigin lögum og nokkrum vel völdum jólalögum.“
Er einhver viðburður eða upplifun sem þú verður að ná fyrir jólin?
„Það er kannski ekkert eitt sem ég geri á hverju einasta ári, nema kannski að pakka inn gjöfum, það kemur mér alltaf í jólaskap. Ég reyni samt að gera eitthvað skemmtilegt á aðventunni, þótt það sé ekki það sama á hverju ári. Í fyrra föndraði ég jólaskraut heilt kvöld heima hjá mér með kertaljós og jólatónlist á fóninum, það var alveg yndislegt.“
Róleg og heimilisleg stemning
Una ætlar ásamt unnusta sínum að halda jólatónleika í Salnum þann 18. desember næstkomandi.
„Ég hélt fyrst jólatónleika í Salnum árið 2024 og mér fannst það svo gaman að ég gerði það aftur í fyrra og nú ætlum við Haffi að endurtaka leikinn. Mig langaði að bjóða upp á tónleika sem fönguðu jólastemninguna sem ég tengi sjálf mest við, þessa rólegu, heimilislegu orku. Það hefur verið skemmtilegt að þróa efnisskrána ár frá ári og við hlökkum mjög til að mæta aftur í Salinn í jólafötunum.“
Hvað verður á efnisskránni og hvaða stemningu vonast þú til að skapa fyrir gestina?
„Við Haffi spilum á gítarana okkar og flytjum blöndu af mínum lögum og uppáhaldsjólalögunum mínum, bæði sálmum og popplögum, ég spjalla við áhorfendur og segi sögur á milli laga. Við viljum helst að fólk fari heim með hlýju í hjartanu og bros á vör.“
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/71/1687189.jpg)

