Stóri skellurinn

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um uppsagnir.

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um uppsagnir. Ljósmynd/Kári Sverriss

Marta María Winkel segir að fólk sem missir vinnuna fari í gegnum sorgarferli sem er ekki ólíkt því að missa ástvin.

Síðustu vikur hafa verið undirlagðar af fréttum um uppsagnir á vinnustöðum landsins. Ég er ekki með nákvæma tölu yfir hvað margir hafa misst vinnuna en miðað við fréttaflutning eru þetta mörg hundruð manneskjur. Þetta eru skyldmenni okkar, vinir vina, frænkur, frændur, gamlir kærastar og samferðafólk.

Þegar hagkerfi heimsins kólna þarf að minnka báknið, endurskipuleggja og reyna að finna betri leiðir til að halda lífi í fyrirtækjum og stofnunum. Allir sem hafa áhuga á þjóðfélagsmálum skilja það og vita að það þarf að bregðast við. Það er ekki hægt að puðra peningum út í loftið endalaust. Hugsanlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir eitthvað af uppsögnum ef ferðabann hefði verið sett á opinbera starfsmenn fyrir einhverjum árum.

Það breytir því hins vegar ekki að ástandið núna minnir svolítið á haustið 2008. Ég er þó ekki að halda því fram að bankakerfið sé að hrynja þótt mælt sé með því að hvert mannsbarn komi sér upp útvarpi sem gengur fyrir batteríum, vatnstanki og dósamat.

Haustið 2008 var ég ein af þeim sem skorin voru niður þar sem ég starfaði sem blaðamaður á snepli sem nú er gjaldþrota. Ég taldi virði mitt á vinnustaðnum vera töluvert. Ég mætti samviskusamlega, gekk rösklega til verka, fékk góðar hugmyndir og hringdi mig aldrei inn veika. Ég var hins vegar ekkert sérstaklega ánægð og þeir sem lesa þennan dálk vita að stuttu fyrir hrun sótti ég um vinnu í banka og fékk ekki.

Þótt óánægja grasseri í öllum frumum líkamans þá vill manneskjan ákveða sjálf hvort hún sé að koma eða fara. Hún vill ekki láta reka sig.

Það er alveg sama hvernig fólk er búið að koma sér fyrir í lífinu. Það er alltaf flókið að missa vinnuna. Ekki endilega vegna launa heldur vegna innra virðis sem við mælum út frá skipuriti á vinnustað. DNA í hefðbundnum starfsmanni vill fá hrós frá yfirmanni sínum og flestir myndu vilja koma upp hvatakerfi þar sem starfsmaður mánaðarins væri valinn líkt og hann ynni á hamborgarastað í Ameríku. Það þyrftu ekki að vera nein verðlaun, ekki launahækkun. Barmmerki væri nóg, þá vissu hinir á vinnustaðnum að starfsmaður mánaðarins hefði gert eitthvað af viti.

Svo er það þessi blessaði Georg Bjarnfreðarson sem býr innra með okkur öllum þótt fæstir vilji kannast við það. Einhverjir þræðir í okkur vilja völd, mannaforráð og geta sagt heiminum að við séum yfirmenn hér. Innra virði eykst við að fá titil, hækka í skipuriti, vera kóngurinn á vinnustaðnum.

Hér er Jón Gnarr í hlutverki Georgs Bjarnfreðarsonar í Næturvaktinni.

Hér er Jón Gnarr í hlutverki Georgs Bjarnfreðarsonar í Næturvaktinni. Ljósmynd/Aðsend

Þegar vel árar í hagkerfum heimsins fitna fyrirtæki og Georgum Bjarnfreðarsonum snarfjölgar. Þegar Georg Bjarnfreðarson missir vinnuna þá fer allt í rugl. Veröldin hrynur. Hann verður reiður og fer að kenna öðrum um. Og hvers vegna segi ég þetta? Jú, vegna þess að ég var á þessum stað 2008.

Þegar manneskja missir vinnuna hefst sorgarferli. Samkvæmt sorgarfræðum, þar sem ferlið er yfirleitt skilgreint í fimm stigum, fer fólk í afneitun við atvinnumissi. Það trúir því ekki að þetta sé raunveruleikinn en svo tekur reiðin við.

Það er í raun hættulegasta stig sorgarinnar því reitt fólk er líklegt til alls. Þegar reiðin hjaðnar hefst samningstímabil og fólk fer að velta fyrir sér hvort það hefði getað gert eitthvað öðruvísi. Svo hellist depurðin yfir og í lokin verður sátt. Þótt atvinnumissir sé í raun sorgarferli þá er lífsins ómögulegt að segja til um hvað fólk verður lengi á hverju stigi sorgarinnar. Það er til fólk sem hefur fest í reiði og vill alls ekki komast út úr henni. Það stig er líffræðilega hættulegt því reiði er vond fyrir hjarta og æðakerfi. Við getum dottið niður dauð ef okkur rennur ekki reiðin.

Ef við missum ástvin skiptir máli að detta ekki í pillur og vín og það er mikilvægt að halda rútínu. Þetta á líka við um fólk sem missir vinnuna.

Ef einhver í þínu nærumhverfi er atvinnulaus núna þá mæli ég með því að þú komir fram við viðkomandi eins og hann hafi misst ástvin. Og ekki grípa til frasa á borð við: þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar. Fólk í sorgarferli þarf bara raunverulega hlýju og stuðning.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅