Ágústa og Dr. Gunni í essinu sínu
Það var mikil stemmning í Hvarí á laugardaginn þegar listamennirnir Steinunn Eldflaug Harðardóttir og Dr. Gunni sýndu myndlist sína. Á opnunni kom íslenska pönksveitin S.H. Draumur saman.
Á meðal gesta voru Ellý Ármanns, myndlistarkona og spákona. Óttarr Proppé tónlistarmaður og fyrrverandi stjórnmálamaður mætti einnig á sýninguna sem og vinkona hans Ragnheiður Eiríksdóttir. Curver Thorodsen virti fyrir sér verkin sem og listakonan Gígja Jónsdóttir. Ágústa Kolbrún Roberts, heilari, jógakennari og listakona, lét sýninguna heldur ekki fram hjá sér fara.
Tónlistarmenn og myndlistarmenn
Dr. Gunni og Steinunn Eldflaug eiga það sameiginlegt að hafa átt blómlegan feril í tónlist. Þetta er önnur einkasýning Dr. Gunna og heitir hún Draumar í lit. Steinunn hefur unnið jöfnum höndum að myndlist, forritun, gjörningum og tónlist undir listamannsnafninu dj. flugvél og geimskip. Sýning hennar að þessu sinni heitir Tvívíð tónlist.
Listamennirnir Steinunn Eldflaug Harðardóttir og Dr. Gunni voru hæstánægð með daginn. mbl.is/Anton Brink
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










