Listaelítan fagnaði með Hrafnkeli
Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Hrafnkell Sigurðsson listamaður og Björk Hrafnsdóttir sýningastjóri. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnkell Sigurðsson opnaði sýningu á Kjarvalstöðum á dögunum. Hann er er tíundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi.
Vel var mætt á opnunina. Þar var kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson, listahjónin Helgi Þorgils Friðjónsson og Rakel Halldórsdóttir, Margrét Bjarnadóttir dansari og rithöfundur sem er að gera allt vitlaust þessa dagana með bók sinni Varkár, Sigurður Gísli Pálmason eigandi Ikea og Sverrir Guðjónsson söngvari. Þar var líka Kristín Gunnlaugsdóttir listamaður og Sigrún Edda Björnsdóttir sem er ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar. Helgi Björnsson mætti í öllu sínu veldi með þriggja daga gamalt skegg og var eiginkona hans, Vilborg Halldórsdóttir með í för. Hrafnhildur Arnardóttir, eða Shoplifter eins og hún er kölluð var á svæðinu og auðvitað Markús Þór Andrésson safnsstjóri Listasafns Reykjavíkur. Berþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson eigendur Farmers Market létu sig heldur ekki vanta.
Sigurður Gísli Pálmason fjárfestir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri og Sigurþór Heimisson. Ljósmynd/Aðsend
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi, Helgi Þorgils Friðjónsson listamaður og Rakel Halldórsdóttir matarlistarmaður. Ljósmynd/Aðsend
Hilmar Einarsson, Bergsveinn Birgisson rithöfunur og Andri Snær Magnason rithöfundur. Ljósmynd/Aðsend
Myndlistarmaðurinn Kristín Gunnlaugsdóttir, Sverrir Guðjónsson söngvari og Anna Rún Tryggvadóttir listamaður. Ljósmynd/Aðsend
Leikkonan Sigrún Edda Björnsdóttir, Axel Hallkell tónlistarmaður, María Th. Ólafsdóttir búningahönnuður og Vigfús Birgisson. Ljósmynd/Aðsend
Dóra Einarsdóttir búningahönnuður, Helgi Björnsson poppstjarna og Vilborg Halldórsdóttir skáld. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnkell Sigurðsson, Hrafnhildur Arnardóttir listamaður og Bjarni Friðrik Jóhannsson. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗














