Bruno tjáði sig um vandamálin utan vallar
Bruno Fernandes, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Manchester United, segir að vandamál utan búningsklefans geri liðinu lífið erfiðara og skilji leikmennina eftir andlega niðurbrotna.
„Það eru margir þættir utan búningsklefans, utan leikmannanna og starfsliðsins, sem gera frammistöðu félagsins og það sem við getum gert á vellinum erfiðara,“ sagði hann við TNT Brazil eftir 3:2-sigurinn á Roma á þriðjudag.
„Við höfum miklar væntingar til okkar sjálfra og þegar hlutirnir ganga ekki upp endum við andlega niðurbrotnir af gremjunni yfir því að geta ekki gefið félaginu það sem við teljum okkur raunverulega geta.“
Fernandes bætti við: „Þegar staðan er svona er ekki bara eitt vandamál. Þau eru fleiri en eitt.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗