Neyðist til að búa á hótelum

Nicolas Cage hefur það fínt á hótelum þrátt fyrir að ástæðan sé leiðinleg. AFP/Lisa O'CONNOR

Það er marga sem dreymir um að búa á hóteli en stórleikarinn Nicholas Cage er akkúrat í þeirri stöðu núna. Cage greindi frá breyttu heimilisfangi eftir að jarðvegur gaf sig fyrir fram heimili hans í Kaliforníu. 

„Akkúrat núna er ég smá heimilislaus,“ sagði Cage í pallborði í Los Angeles á dögunum að því fram kemur á vef People. „Það kom svolítið fyrir húsið mitt í Malibu þannig ég bý eiginlega á hótelum.“

Þrátt fyrir að það sé gaman að gista á hóteli er líklega ástæðan ekki skemmtileg að þessu sinni hjá Cage og fjölskyldu hans. 

Miklar skemmdir

Fréttir höfðu borist af því að jarðvegur hefði gefið sig fyrir framan heimili hans sem liggur að strönd í Malibu í Kaliforníu. Þar með þurftu íbúar í nágrenninu að yfirgefa heimili sín. Skemmdir urðu á innkeyrslu leikarans sem og á götunni sem hann býr í. Ekki er vitað nákvæmlega hversu mikið tjón varð á húsinu. 

Bandaríkjamenn halda sérstaklega mikið upp á hrekkjavökuna og Cage sem á fjögurra ára gamla dóttur þurfti að breyta henni í ár vegna þess að fjölskyldan býr tímabundið á hótelum. 

Hjónin Riko Shibata og Nicolas Cage neyðast til þess að búa á hóteli. AFP/LISA O'CONNOR

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅